|
1. Viðurkenndu synd þína:
„Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð,“ Róm. 3:23 Ef vér segjum: ,,Vér höfum ekki synd,`` þá svíkjum vér sjálfa oss og sannleikurinn er ekki í oss.“ 1. Jóh. 1:8
2. Trúðu á Jesú:
„Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ Jóh. 3:16
3. Játaðu synd þín og yfirgef hana:
„Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti.“ 1. Jóh. 1:9
Hvernig veistu að þú ert barn Guðs?
Á sama augnabliki og þú tekur á móti Jesú Kristi sem frelsara þínum, tekur Guð á móti þér sem barni sínu. Hann gefur þér fullvissu um þetta á þrennan hátt: Í gegnum orð sitt, sem segir svo vera. Í gegnum innri fullvissu, fyrir vitnisburð andans og í gegnum þá breytingu sem verður á lífi þínu.
„Sá sem trúir á Guðs son hefur vitnisburðinn í sjálfum sér. Sá sem ekki trúir Guði hefur gjört hann að lygara, af því að hann hefur ekki trúað á þann vitnisburð, sem Guð hefur vitnað um son sinn. Og þetta er vitnisburðurinn, að Guð hefur gefið oss eilíft líf og þetta líf er í syni hans. Sá sem hefur soninn á lífið, sá sem ekki hefur Guðs son á ekki lífið.“ Jóh. 5:10-1
„Sjálfur andinn vitnar með vorum anda, að vér erum Guðs börn.“ Róm. 8:16
„Hver sem synd drýgir heyrir djöflinum til, því að djöfullinn syndgar frá upphafi. Til þess birtist Guðs sonur, að hann skyldi brjóta verk djöfulsins.“ 1 Jóh, 3:8 |