Almannaheill

Boðskapur Biblíunnar er til heilla fyrir þann sem meðtekur. Þar af leiðandi er starf Lindarinnar til heilla fyrir land og þjóð.

Nú færum við þær fréttir að Lindin er komin á almannaheillaskrá yfirvalda. Þetta þýðir að nú fá einstaklingar og fyrirtæki sem styðja Lindina, skattalækkun, skv. nýjum lögum frá Alþingi.

Heildarupphæðin sem þú styrkir Lindina um á hverju almanaksári kemur sjálfkrafa árituð á skattframtalið.  Nýju lögin gilda frá 1. nóv. 2021, þannig að þeir sem styrktu Lindina með framlagi í nóv. og des. síðastliðnum ná að nýta skattalækkunina þá tvo mánuði líka, sem og allt þetta ár og næstu ár.

 

Einstaklingar

Frádráttur einstaklinga getur verið á bilinu 10 – 350 þkr. á hverju almanaksári. Hjá hjónum og sambúðarfólki getur hann numið að hámarki 700 þkr. og kemur til lækkunar á útsvars- og tekjuskattsstofni. Þetta þýðir að einstaklingur sem er í 38% skattþrepi og styður Lindina um 100.000 kr. á ári, fær þannig skattaafslátt upp á 38.000 kr. Það munar um minna.

Fyrirtæki

Frádráttur rekstraraðila getur numið 1,5% af rekstrartekjum ársins. Þetta þýðir að þar sem skattprósenta fyrirtækja er 20% og við tökum dæmi um fyrirtæki sem styður Lindina um 1 mkr á ári, þá fær fyrirtækið skattaafslátt upp á 200.000 kr.

Hér eftir mun Lindin skila framlagi allra gefenda til Skattsins sem áritar það á framtalið.

Við hvetjum þig, hlustandi góður, til að styðja hugsjónastarf Lindarinnar og nýta þér á sama tíma þennan skattaafslátt. Komdu í mánaðarlegan stuðning eða hækkaðu núverandi stuðning þinn til Lindarinnar. Það hjálpar Lindinni og lækkar skattana þína á sama tíma.  Við minnum líka á afmælisviku Lindarinnar í byrjun mars. Þá verður Lindin 27 ára og þá einblínum við, að venju, á rekstrarþörfina og öflum fjár fyrir árið.

Kærleikskveðja,

Hafsteinn Gautur Einarsson, útvarpsstjóri

 


    Lindin mín

    App Lindarinnar hefur fengið frábærar viðtökur. Það er notað 1.100 sinnum að meðaltali í hverjum mánuði. Svo hlusta margir á dagskrá Lindarinnar í beinni í gegnum appið.

    Smelltu á myndina að ofan til að eignast þína eigin Lind.

    Lindin, kristið útvarp │ Krókhálsi 4 │ 110 Reykjavík │ kt. 691194-2729 │ S: 567-1818 │ lindin@lindin.is