Skip to content

Lindin

Lifandi útvarp

Bannerinn-1
Primary Menu
  • Heim
  • Um Lindina
    • About Lindin
    • Hugsjón
    • Frelsisbænin
    • Saga Lindarinnar
    • Sagan í ártölum
    • Salur til leigu
    • Myndband: Tónlist og trúboð í 10 ár
    • Starfsfólk
    • Stjórn Lindarinnar
    • Lausanne sáttmálinn
    • Bréf til þín
    • Viltu hjálpa til?
    • Já, ég vil hjálpa til
    • Ertu lærisveinn?
    • Friðhelgisstefna
    • Vitnisburðir
  • Dagskrá
    • Vikudagskráin
    • Lindin „í beinni“
    • Boðskapur dagsins
      • Jesús, Jónas og Dómaldi
      • Í þörf fyrir náð Guðs
      • Vitnisburðir í Biblíunni
    • Uppáhalds lögin mín
    • FM tíðnikort
    • Brandarar
  • Bænir
  • Appið
    • Sækja Lindar appið
    • Hlusta á þætti
    • Stakir þættir
    • Spilari Lindarinnar
  • Á döfinni
    • Alþjóðleg bænavika
    • Alþjóðlegi trúboðsdagurinn
    • Bænaganga á sumardaginn fyrsta
    • Alfa námskeið
  • Hljóð og mynd
    • Upptökur og hljóðvinnsla
    • Frelsari allra tíma
  • Stuðningur
    • Nýr stuðningsaðili
    • Skrá greiðslukort
    • Skattaafsláttur
    • Gjöf á móti gjöf
    • Hvað hefur Lindin gert fyrir þig?
    • Bankareikningar / Financial support
  • Gjöf-á-gjöf
  • Home
  • 2026
  • February
  • 26
  • Veldu viðhorf þín. Breyttu lífi þínu.
  • Boðskapur dagsins

Veldu viðhorf þín. Breyttu lífi þínu.

Lindin kristið útvarp 26/02/2026

 

Boðskapur dagsins │ 26. febrúar 2026 │ Stefán Ingi Guðjónsson

Komið þið sæl. Ég heiti Stefán Ingi og er dagskrárstjóri hérna á Lindinni. Ég hef verið viðloðandi Lindina næstum því frá byrjun eða í 29 ár og verið í launuðu starfi á Lindinni síðan 2007. 

 

Ég ætla að flytja fyrir ykkur boðskap dagsins fyrir daginn í dag.

 

Veldu þín viðhorf – Breyttu lífi þínu 

 

Nýlega var ég að horfa á kristilegu sjónvarpstöðina TBN þar sem Dr. Robert Jeffress var í viðtali. Ástæða þessa viðtals var útgáfa bókar hans sem kallast “Veldu viðhorf þín – Breyttu lífi þínu” (Choose your attitudes – Change your life).. Í þessu viðtali segir hann frá föður sínum sem lá banaleguna eftir að hafa greinst með krabbamein í brisi. Þegar hann spurði lækninn hvað pabbi sinn ætti langt eftir lifað svaraði læknir því að það gætu verið mánuðir eða ár. Svo bætti hann við: “Það fer svolítið eftir viðhorfi föður þíns”. Robert var í fyrstu undrandi yfir svari læknisins en því meir sem hann hugsaði um þetta,  því meir áttaði hann sig á því að þetta var rétt. 

Læknavísindin hafa sýnt meir og meir mikilvægi rétts hugarfars í tengslum við heilsuna. Margir telja að svokallaðir “lífstíls sjúkdómar” geti stafað af of miklu álagi yfir langan tíma, stressi og neikvæðni.

 

Guð talar í gegnum Biblíuna um mikilvægi þess að hafa rétt hugarfar. Í Rómverjabréfinu í 12. kafla versi 2 standa eftirfarandi orð. “Fylgið ekki háttsemi þessa heims. Látið heldur umbreytast með hinu nýja hugarfari og lærið svo að skilja hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna.”Við þurfum því að umbreytast, hætta að hugsa eins og við gerðum áður og setja Guð í miðju lífs okkar.

Í Síðara Korintubréfi 10. kafla og versi 5 segir:“Ég brýt niður hugsmíðar og allt sem hreykir sér gegn þekkingunni á Guði og hertek hverja hugsun til hlýðni við Krist.”Það er því gríðarlega mikilvægt að gæta þess hvernig við hugsum og bregðumst við. Hvernig eru viðhorf okkar til lífsins þegar við upplifum erfiðleika í lífi okkar? Er gleði okkar háð því að allt leiki í lyndi í eða getum við átt gleði í erfiðleikunum? Þá má því segja að stjórnlaus hugsun getur leitt okkur afvega ef við höfum ekki varann á.

“Hvernig stjórnlausa hugsun áttu við?” kanntu að spyrja. Hún getur til dæmis verið í formi biturleika eða eftirsjá. Þegar ég var á þrítugsaldri glímdi ég við margs konar neikvæðar hugsanir. Margir mínir vinir voru duglegir námi en ég hafði ekki eirð til þess að læra eins og þeir og vegna þess sóttu að mér hugsanir eins og “ég er ekki nóg klár” eða “ég er ekki nógu góður”. Samt átti ég trú á Guð en mínar röngu hugsanir um sjálfan mig hindruðu Guð að komast að mér. Ekki vegna þess að Guð elskaði mig ekki og vildi ekki koma til mín, heldur miklu fremur var það ég sem hleypti honum ekki inn í mitt “vorkunnar-partý”. Þegar árin hafa liðið hef ég stundum fyllst eftirsjá yfir því að hafa ekki staðið mig betur í skóla og verið meira einbeittur í lífinu en ég var á þessum tíma.

Guð þrengir sér ekki inn líf okkar. Hann stendur við dyrnar og vill vera hleypt inn. Það gildir einnig eftir að við höfum boðið honum að vera leiðtogi lífs okkar.

Stundum verður gott fólk á vegi okkar sem virðist vera svo einbeitt á eitthvað neikvætt sem hefur gerst í lífi þess og sér ekki allt hið góða í kringum sig. Það getur ekki fyrirgefið þeim sem hafa gert eitthvað á hlut þess og reynir að halda áfram ferðinni í gegnum lífið á hnefanum og með steinvölu biturleika og ófyrirgefningar í skónum sínum. Það skilur síðan ekkert í því hvers vegna það er svo sárfætt. Þetta góða fólk getur ekki sleppt tökunum á fortíðinni og lifir þess vegna nútíðina þannig að það er alltaf að horfa í baksýnisspegil lífsins.

Við lesum í Postulasögunni 3. kafla um Pétur og Jóhannes sem voru á leið til síðdegisbæna. 

“Pétur og Jóhannes gengu upp í helgidóminn til síðdegisbæna. 2 Þá var þangað borinn maður, lami frá móðurlífi, er dag hvern var settur við þær dyr helgidómsins sem nefndar eru Fögrudyr til að beiðast ölmusu af þeim er inn gengu í helgidóminn. 3 Er hann sá þá Pétur og Jóhannes á leið inn í helgidóminn baðst hann ölmusu. 4 Þeir horfðu fast á hann og Pétur sagði: „Lít þú á okkur.“ 5 Hann starði á þá í von um að fá eitthvað hjá þeim. 6 Pétur sagði: „Silfur og gull á ég ekki en það sem ég hef, það gef ég þér: Í nafni Jesú Krists frá Nasaret, statt upp og gakk!“ 7 Og hann tók í hægri hönd honum og reisti hann upp. Jafnskjótt urðu fætur hans og ökklar styrkir, 8 hann spratt upp, stóð í fætur og tók að ganga. Hann fór inn með þeim í helgidóminn, gekk um og stökk og lofaði Guð. 9 Allt fólkið sá hann ganga um og lofa Guð. 10 Menn könnuðust við að hann var sá er hafði setið fyrir Fögrudyrum helgidómsins til að beiðast ölmusu. Urðu þeir furðu lostnir og frá sér numdir af því sem fram við hann hafði komið.”

  • Postulasagan 3. kafli vers 1 til 10.

Það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir lamaða manninn að komast ekki inn helgidóminn. Hann heyrði lofsönginn, sá eftirvæntinguna í augum þeirra sem löbbuðu áleiðis framhjá honum inn í helgidóminn. Hann gat ekki upplifað neitt af þessu vegna þess að hann sat fyrir utan.En lífið hans breyttist þennan dag. Dagurinn sem hafði byrjað ósköp venjulega varð að degi sem hann myndi aldrei gleyma. Nú gat hann hlaupið og stökkið. Þvílík breyting á einum manni, dýrð sé Guði!

 

Mér finnst að þeir sem hafa allt á hornum sér og vilja ekki fyrirgefa löngu liðna atburði séu á vissan hátt andlega lamaðir. Þeir eru alltaf í fórnarlambs hlutverki og geta ekki og vilja ekki taka augun af vandamálum sínum.

Það er margt líkt með þeim og lamaða manninum. Þau mæta á samkomu eftir samkomu og lesa Biblíuna og eiga jafnvel bænalíf. En lesturinn á Biblíunni er meira til að finna galla hjá öðrum en hjá sjálfum sér. Þau lesa einhvern ritingarstað og hugsa með sér þessi þarf að heyra þetta eða hinn þarf að heyra þetta. Þau átta sig ekki á því að Guð er nota þessi orð til að vekja þau til lífs. 

Klassísk einkenni sem fylgja því að vera í þessu ástandi eru t.d að þú missir alveg af samkomunni sem þú ert mættur á vegna þess að einhver í salnum hefur kannski einhvern tímann gert eitthvað á hluta þinn eða hugur þinn leitar til baka í allt það slæma sem einhver hefur gert þér.

 

Kannski er þú hlusta í dag og þú kannst við þessi einkenni. Þú hefur burðast með þessar röngu hugsanir alltof lengi. Þú ert hættur að mæta í kirkju vegna þess að þú ert hræddur um að vera særður á ný. Í stað þess að lifa lífi í fullri gnægð eins og Jesús talar um í Jóhannesarguðspjalli 10:10 þá ert þú einfaldlega bara að reyna að lifa af. En góðu fréttirnar eru þær að Guð er ennþá að banka á þínar hjartans dyr rétt eins og hann gerði við kirkjuna í Laodíkeu sem við lesum um í Opinberunarbókinni 3. kafla.

Mín bæn er að þú takir háttaskiptum, að þú endurnýjir hugarfar þitt og fáir þannig að sjá hver vilji Guðs er, hið góða fagra og fullkomna (Rómverjabréfið 12.2).Þegar þú sérð hlutina í ljósi Guðs veitist þér auðveldara að fyrirgefa og sættast við fortíðina. En það er mikilvægt skref til að getað lifað í nútíðinni og falið Guði framtíð þína.

Mætti þetta ár vera sigurár í lífi þínu. Ár þar sem þú færð að vaxa í Guði og ganga inn í allt það sem Hann hefur fyrir þig. Iðrastu fyrir allt hið ranga og slepptu tökum á því liðna.

 

Ég vil enda á að lesa 2. Korintubréf 6. kafla, fyrsta og annað vers:

“Sem samverkamaður Krists hvet ég ykkur einnig að þið látið ekki náð Guðs, sem þið hafið þegið, verða til einskis. Hann segir:

Á hagkvæmri tíð bænheyrði ég þig, og á hjálpræðisdegi hjálpaði ég þér.  Nú er hagkvæm tíð, nú er hjálpræðisdagur.”

 

Guð blessi þig.

 

About The Author

Lindin kristið útvarp

See author's posts

Post navigation

Previous: Akab og Elía.

Related Stories

Akab-og-Elía-fyrir-vefsíðuna
  • Boðskapur dagsins

Akab og Elía.

Lindin kristið útvarp 25/02/2026
MYND-fyrir-vefsíðuna
  • Boðskapur dagsins

„Sá mesti meðal yðar sé þjónn yðar“.

Lindin kristið útvarp 24/02/2026
BD-29-JAN
  • Boðskapur dagsins

Hvað má kristnin kosta?

Stefán Ingi Guðjónsson 28/01/2026

Lindin

Lindin, kristið útvarp │ Krókhálsi 4 │ 110 Reykjavík │ kt. 691194-2729 │ Banki 0130-26-126868 │ S: 567-1818 │ lindin@lindin.is

Drottinn blessi þig, kæri hlustandi. | MoreNews by AF themes.