Salur til útleigu

Lindin er til húsa að Krókhálsi 4 í Reykjavík. Við bjóðum salinn í miðrýminu til afnota fyrir kristilegt starf.

Rýmið er nýstandsett, allt nýmálað og með nýtt vínylparket á gólfum. Til staðar er sýningartjald, skjávarpi, magnari og 5 hátalarar sem gerir kleift að halda samkomur, lofgjörðarstundir, námskeið, fyrirlestra, beinar útsendingar eða bíósýningar.  40 stólar eru á staðnum en 40 manns komast þægilega fyrir í rýminu.  Salurinn er laus til afnota á kvöldin og um helgar og er þá aðgangur að eldhúsi innifalinn, með kaffivél og borðbúnaði.

Afnotin eru gegn vægu gjaldi til Lindarinnar:

  • Eitt skipti 12.000 kr.
  • Mánaðarleiga 30.000 kr. (afnot í 4-6 skipti)

Skilyrði er að vel sé gengið frá salnum og húsnæðinu eftir notkun.

Sendið okkur póst á hafsteinn@lindin.is, eða hringið í síma 567-1818,  ef þið hafið áhuga.


    Lindin mín

    App Lindarinnar hefur fengið frábærar viðtökur. Það er notað 1.100 sinnum að meðaltali í hverjum mánuði. Svo hlusta margir á dagskrá Lindarinnar í beinni í gegnum appið.

    Smelltu á myndina að ofan til að eignast þína eigin Lind.

    Lindin, kristið útvarp │ Krókhálsi 4 │ 110 Reykjavík │ kt. 691194-2729 │ S: 567-1818 │ lindin@lindin.is