
Boðskapur dagsins │ 31. mars 2026 │ Aðalsteinn M Þorsteinsson
Kæri hlustandi Lindarinnar. Ég heiti Aðalsteinn Már Þorsteinsson og er í forsvari fyrir sjálfseignarstofnunina Lífsmótun sem m.a. gefur út Lykilorð. Ég flyt þér boðskap dagsins í dag norðan úr Þingeyjarsveit.
Í síðara Tímóteusarbréfi 3. kafla versum 16 til 17 standa þessi orð: Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, umvöndunar, leiðréttingar og menntunar í réttlæti til þess að sá sem trúir á Guð sé albúinn og hæfur ger til sérhvers góðs verks.
GT geymir m.a. sögu þjóðar. Við fylgjum eftir ýmsum einstaklingum og hópum á göngu sinni í gegnum lífið þar sem ýmist er Guðs leitað og reynt að fylgja honum eða fallið er frá trú og fylgd við Guð. Ritarar GT leitast við að draga upp einfalda mynd af beinni fylgni milli þess að þóknast Guði og eiga gott líf annars vegar og svíkja Guð og gjalda það dýru verði hins vegar. Þó svo að oft sé allnokkur munur milli þess veruleika sem fólk þar bjó við og okkar þannig að það er síður en svo hægt að afrita og taka upp allt það sem þar er greint sem gott og gilt þá getum við lært margt um mannlegt eðli okkar og glímu mannsins við rétta breytni og trú á Guð með því að lesa GT og verða vel kunnug því efni sem þar er að finna. Sú var tíðin að öll börn á Íslandi fengu í það minnsta smá kynningu á Abraham, Ísak, Móse, Jakob, Jósef, Davíð, Salómon, Rut, Daníel, Ester, Job, Gídeon, Samson og Elía svo nokkur nöfn séu nefnd en núorðið þekkja sífellt færri til þessara eða annarra persóna GT og sögurnar af þeim. Allar eiga þær þó erindi enn þann í dag í dag, bæði við börnin en ekki síður við fullorðna, til lærdóms í réttvísi og aðdáunarfullrar virðingar á mikilfengleika og gæsku Guðs. Þetta hljómar ef til vill eins og söluræða hérna hjá mér en mig langar einmitt til þess að kveikja í ykkur kæru hlustendur löngun til að lesa GT, hvetja ykkur til þess að leggjast í lestur og læra allar sögurnar. Með því gefið þið Guði tækifæri til þess að blása þær lífi og nota þær til þess bæði að tala inn í ykkar líf en einnig auka þekkingu ykkar og innsýn á því hver og hvernig Guð er.
Svo er GT líka svo fullt af öðru efni. Þar getum við til dæmis líka lesið marga spádóma sem segja fyrir um komu Jesú Krists sem frelsara allra manna og ýmsir viðburðir þar og frásagnir eins og kallast á við og vísa til lífs Jesú Krists, píslagöngu hans og frelsunarverksins á krossinum. Jesús lét sitt líf á krossi til þess að frelsa hvern mann frá synd og dauða og lestur og þekking á efni GT er í raun mikilvægur lykilþáttur í því að öðlast fullan skilning á hjálpræðisverkinu. Hvernig hjálpar það sem Jesús gerði mér? Það er virkilega spennandi að sjá og uppgötva allar þessar fjölmörgu tengingar milli GT og Jesú. Enda auðgandi að öðlast dýpri og víðari skilning á þessum mikla leyndardóm sem er opinberaður smælingjum en hulin spekingum og hyggindarmönnum. (Lúkas 10.21) Að Guð gerðist sjálfur maður í Jesú Kristi til þess að taka út þá refsingu sem syndin leiðir af sér fyrir alla menn svo hver sem trúir á Jesú sé leystur undan valdi syndarinnar, eigi eilíft líf og lifi þótt hann deyji. Ef þú veist þetta nú þegar og skilur þá er það því að þú hefur nálgast Guð í auðmýkt, sem smælingi, og Guð hefur því opinberað þér það af náð sinni. Þann sem skilur það ekki eða á í einhverju basli með að átta sig að fullu vil ég hvetja til þess að leita Guðs af hjartans auðmýkt og leita svara með því að lesa Biblíuna í bæn til Guðs um náð, biðja Guð að gefa sér að skilja það hvernig hægt er að frelsast og eiga eilíft líf. Því það stendur öllum til boða að þiggja.
Í GT eru fleiri fjársjóðir eins og ljóð og sálmar þar sem finna má bæði lofgjörð til Guðs sem enn er sungin og ádeilu, glímu mannsins við að skilja sjálfan sig, veröldina og Guð. Lestur og söngur á lofgjörðar-sálmum GT styrkja bæði trú og sambandið milli Guðs og manns, því Guð nálgast þau og dvelur hjá þeim sem heiðra hann í tali og tónum. Fyrir þau, hins vegar, sem standa sjálf í erfiðleikum og glíma við Guð í leit sinni að svörum og skilningi er gott að líta í GT, sjá að þau eru fleiri sem berjast við að skilja sitt hlutskipti og ganga í gegnum tímabil í lífinu þar sem þau ásaka Guð. Og þó maðurinn sé ekki í neinni stöðu til þess að deila á Guð (Róm 9.20-21) þá hefur margur maðurinn tekið sína rimmu við hann og um nokkrar slíkar getum við lesið í GT og lært af.
Eins og gefur að skilja eru líka sögur Í GT sem fólk, okkur, mig og þig kann að greina á um. Sögur sem fyrir sumum er alveg ljóst að ekki geta hafa gerst þannig, öðrum finnst það óljóst og svo eru þau sem neita alveg að viðurkenna nokkuð annað en að allar sögur GT séu á allan hátt sannar. Persónulega finnst mér það á engan hátt draga úr erindi sagna GT til okkar eða vægi þeirra til þess að kenna okkur þó svo að sumt af því sem þar er líst hafi aldrei gerst í raun og veru þannig. Á sama tíma veit ég að sá Guð sem ég trúi á er ekkert um megn. Allt sem stendur skrifað í Biblíuna gæti vel hafa gerst nákvæmlega eins og því er lýst þar, en trú mín á Jesú stendur hvorki né fellur með því hvort Guð skapaði heiminn á sex dögum eða miljónum ára, svo dæmi sé tekið. Tilgangur og tilurð GT er ekki til að kenna þróunarsöguna heldur svo að augu okkar opnist fyrir því og við höldumst jafnframt árvökul gagnvart því hvaðan við komum, í hvaða tilgangi við lifum og með hvaða hætti manninum farnast best: Með því að elska Drottinn Guð af öllu hjarta og náungan eins og sjálfan sig. (Lúkas 10.27)
Jesús þekkti GT frá blautu barnsbeini, hann vitnar margoft í það í máli sínu og tók þátt í siðum, venjum og hátíðum sem eiga uppruna sinn þar. Ef þú og ég viljum fylgja Jesú Kristi þá þurfum við í raun líka að leitast við að þekkja GT. Vonandi hef ég geta vakið hjá þér löngun og þrá. Lesturinn ætti að spretta af því frekar en sem kvöð eða áþján en það er auðvitað fullkomlega eðlilegt að geta þurft að yfirvinna smá hindrun á leiðinni. Þá er gott að minna sig að til mikils er að vinna því Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, umvöndunar, leiðréttingar og menntunar í réttlæti til þess að sá sem trúir á Guð sé albúinn og hæfur ger til sérhvers góðs verks. (2. Tím 3.16-17)