.
Alfa – haustið 2024
Hvítasunnukirkjan á Selfossi., Kynningarkvöld þrd. 3. sept. Námskeiðið hefst þrd. 10. sept., kl. 18. Alfa-helgin í Kotinu, 11.-12. okt. (haldin sameiginlega með Hv.s.k. Fíladelfíu). Verð 9.500 kr. Skráning í síma 482-1239
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Námskeiðið hefst fim. 12/9, kl. 17:30-20:00. Alfa-helgin í Kotinu, 11.-12. okt. (haldin sameiginlega með Hv.s.k. á Selfossi). Verð 9.500 kr. Skráning á filadelfia@filadelfia.is
Hvítasunnukirkjan á Akureyri, þrd. 10. sept., kl. 18:00-20:00. Þrír aldurshópar, 13-15 ára, 16-20 ára og svo fullorðnir. Alfa helgi á Hólavatni. Verð 5.000 kr. Skráning í síma 461-2220 og á hvitak@hvitak.is
Lindakirkja, Uppsölum 3, Kópavogi. Námskeiðið hefst með kynningarkvöldi, mið. 25. sept., kl. 18:00-21:00. Alfa-helgin verður í Ölveri. Nánari upplýsingar má finna hér. Skráning í síma 544 4477 og gegnum gudni@lindakirkja.is
Catch the Fire Reykjavík, safnaðarheimili Grensáskirkju, Háaleitisbraut 66. Námskeiðið hefst fimmtudaginn 17. okt., kl. 18:00. Nánari upplýsingar í síma 790-1500.
.
Um Alfa
Alfa er 10 vikna námskeið um kristna trú. Þar er fjallað á einfaldan og þægilegan hátt um grundvallaratriði kristinnar trúar og boðskap Biblíunnar. Með virkri þátttöku námskeiðsgesta er leitast við að svara mikilvægustu spurningum lífsins, spurningum sem allir spyrja sig einhvern tímann á lífsleiðinni en hafa kannski ekki náð að svara fyrir sitt leyti. Er Guð til? Hver er tilgangur lífsins? Er kristin trú úrelt og óviðeigandi?
Alfa styðst við bók Nicky Gumbel; Spurningar lífsins (e. Questions of Life). Umgjörð námskeiðsins er afslöppuð og þægileg og ekki eru lagðar kröfur á þátttakendur um viðhorf, skoðanir eða afstöðu.
Alfa hefur verið haldið í fjölmörgum kirkjum á Íslandi síðan árið 1997. Alfa námskeiðin eiga uppruna sinn í Holy Trinity Brompton kirkjunni í London. Þau hafa verið haldin út um allan heim, enda vinsælasta og árangursríkasta námskeið sinnar tegundar í heiminum.
Alfa á Íslandi
Ef þú hefur spurningar um Alfa, eða ef þú vilt koma á fót námskeiði hjá þér, þá getur þú sent Alfa-nefndinni póst gegnum alfaaislandi@gmail.com eða haft samband við formann Alfa á Íslandi, Einar Sigurberg Arason í síma 869-8269.
Almennt um Alfa námskeiðin
Alfa námskeiðið hófst í Englandi fyrir u.þ.b. 20 árum. Námskeiðið er nú haldið í um 130 löndum í flestum kirkjudeildum. Alfa er 8 vikna námskeið, einu sinni í viku, þar sem fjallað er um grundvallaratriðið kristinnar trúar á einfaldan og þægilegan hátt.
Tekist er á við mikilvægustu spurningar lífsins. Hvorki eru gerðar kröfur um trúarafstöðu né heimalærdóm eða aðrar skuldbindingar gerðar til þátttakenda. Hver samvera hefst með léttum málsverði. Síðan er kennt í 30 mínútur og eftir stutt hlé eru umræður í hópum.
Á Alfa námskeiðinu gefst fólki tækifæri til að spyrja spurninga og taka þátt í skapandi umræðu um lífið og tilveruna.
Fyrir hverja er Alfa?
Alfa er opið öllum sem …
- leita vilja svara við spurningum um tilgang lífsins.
- vilja kynna sér grundvallaratriði kristinnar trúar.
- langar að velta fyrir sér hvaða gildi móta líf okkar og samfélag.
- trúa, efast eða trúa ekki
Um hvað er rætt á Alfa??
- Hver er tilgangur lífsins?
- Hver var og er Jesús Kristur?
- Hvaða heimildir eru til utan Biblíunnar um Krist?
- Hvernig varð Biblían til?
- Hvernig getum við lesið og skilið Biblíuna?
- Hvernig og hvers vegna eigum við að biðja?
- Hvernig leiðbeinir Guð okkur?
- Hvernig getum við orðið viss í trúnni?
- Hver er heilagur andi og hvað gerir hann?
- Hvernig get ég best varið lífinu sem ég á eftir lifað?
- Hvernig skilgreinir Biblían hið illa og hvernig getum við staðið gegn því afli?
- Læknar Guð nú á dögum?
- Hvaða hlutverki gegnir kirkjan?
- Hvað með eilífðina?
Alfa námskeiðið hefur vakið gífurlega athygli kirkju- og þjóðarleiðtoga, fjölmiðla og almennings í mörgum löndum. Í Bretlandi gerði hinn kunni sjónvarpsmaður, David Frost, sjónvarpþáttaröð um Alfa og kom námskeiðið og reynsla þátttakenda honum og samstarfsfólki hans þægilega á óvart.
Ýmsir af þekktustu fjölmiðlum Vesturlanda hafa fjallað um Alfa námskeiðið. Daily Telegraph sendi blaðamann sinn á Alfa námskeið og sá skrifaði eftirfarandi í kjölfar námskeiðsins:
„Þegar ég hugsa um reynslu liðinna vikna finnst mér ég hafa verið í tilhugalífi . . . Ég er enn ekki viss um hver var að biðja mín en ég vil gjarnan trúa því að það hafi verið Hann en ekki þau.“
Í viðtali í Newsweek við Nicky Gumbel, forystumann Alfa í Bretlandi, segir: „Það er ekki hægt að skýra það sem er að gerast öðruvísi en að Heilagur andi sé að verki. Efnishyggju nútímans hefur mistekist að svara spurningum fólks um eðli og tilgang lífsins.“
Spurðu um Alfa námskeið í þinni kirkju. Þú sérð ekki eftir því.