Bænaganga á sumardaginn fyrsta

Á sumardaginn fyrsta bjóðum við sumarið velkomið með bænagöngu. Gengið verður og beðið á yfir 20 stöðum á landinu. Bænagangan er árlegur viðburður, ávallt á sumardaginn fyrsta en þá njótum við útiveru saman og umvefjum landið okkar í bæn. Við tökum fyrir ákveðin málefni sem okkur eru hugleikin og snerta samfélagið. Njótum félagsskapar hvors annars á sama tíma og fögnum komandi sumri.

Með því að smella á hlekkina að neðan þá opnast yfirlitsblöð með upplýsingum um hvern göngulegg fyrir sig, ásamt upphafstímum hverrar göngu. Gönguhópar í Reykjavík leggja af stað klukkan 09:30 um morguninn og þegar upp er staðið þó höfum við gengið hringinn í kringum allt höfuðborgarsvæðið á táknrænan hátt, eins og sjá má á myndinni. Blöðin er hægt að prenta út og taka með sér. Bænagangan er opin öllum og nýtt fólk er hjartanlega velkomið. Bara að mæta á upphafspunkt og hefja göngu og bæn í góðra manna hópi.

Eftir gönguna eða milli kl. 11:30 og 12, hittast hópar úr Reykjavík í Hjallakirkju, Álfaheiði 17 í Kópavogi, í léttan hádegisverð og samfélag. Á landsbyggðinni fer það eftir hverjum stað fyrir sig, hvernig hittingum er háttað.

Smellið hér til að sjá gönguleggi á höfuðborgarsvæðinu.

Smellið hér til að sjá gönguleggi á landsbyggðinni.

Frekari upplýsingar fást hjá þeim sem halda utan um skipulag og undirbúning; Björn Hólm 867-5133 og Hafsteinn 893-9702.

 

Að neðan er kort af gönguleiðum á höfuðborgarsvæðinu.