Lindin fjölmiðlun býður þjónustu við allar almennar upptökur, hljóðvinnslu og masteringu. Lestur á bókum, smásögum og auglýsingum auk þess sem við fullvinnum efni til flutnings í sjónvarpi og útvarpi. Vel hljóðeinangraðir upptökuklefar í boði.
HLJÓÐVER:
Fyrsta flokks upptökutæki, bæði vél- og hubúnaður. Skilum efni á USB-lykli, flakkara eða sendum gegnum WeTransfer.com. Allt eftir þínum óskum.
Gerum tilboð í minni og stærri verk. Sendu okkur fyrirspurn á netfangið hafsteinn@lindin.is eða hringdu í 567-1818.
MYNDVER:
Bjóðum afnot af myndveri þar sem hægt er að taka upp viðtöl, hlaðvarpsþætti, söng, dans og hvers konar “sketsa”. Myndverið er 6 x 6 fm að grunnfleti eða 36 fm að stærð. Með þessa aðstöðu getum við boðið:
– upptökur á söng, lestri bóka og auglýsingum
– viðtöl tekin upp í setti (mynd og hljóð)
– hlaðvarpsþætti
– töfrabrögð, kennslumyndbönd og fleira.
Leiga á myndveri:
Hálfur dagur 1-4 klst: 14.000 kr.
Heill dagur 5-8 klst – 24.000 kr.
Helgardagur: 30% álag á ofangreind verð.
Aðstaðan:
- 36 m2 stúdíó með 4 metra lofthæð
- 165 m2 í alls með móttöku, skrifstofu og vinnslurými.
- “Daylight” studio með stórum gluggum. Einnig þykk svört gluggatjöld til að myrkva.
- Pappírsbakgrunnar (3,5m breiðir) – hvítur, svartur og grænn.
- Aðrir pappírsbakgrunnar (2,72m) eftir þörfum.
- Móttaka og frábær aðstaða fyrir viðskiptavini, fyrirsætur og annað fagfólk.
- Aðstaða fyrir förðun og hár, fataslár og eldhús.