Skip to content

Gjöf-á-gjöf

Lifandi útvarp

BORÐI-FORM-4650-x-550
Primary Menu
  • Heim
  • Um Lindina
    • Saga Lindarinnar
    • About Lindin
    • Hugsjón
    • Salur til leigu
    • Sagan í ártölum
    • Myndband: Tónlist og trúboð í 10 ár
    • Starfsfólk
    • Stjórn Lindarinnar
    • Lausanne sáttmálinn
    • Bréf til þín
    • Viltu hjálpa til?
    • Já, ég vil hjálpa til
    • Ertu lærisveinn?
    • Friðhelgisstefna
    • Vitnisburðir
  • Dagskrá
    • Vikudagskráin
    • Lindin „í beinni“
    • Boðskapur dagsins
      • Jesús, Jónas og Dómaldi
      • Í þörf fyrir náð Guðs
      • Vitnisburðir í Biblíunni
    • Uppáhalds lögin mín
    • FM tíðnikort
    • Brandarar
  • Bænir
  • Appið
    • Sækja Lindar appið
    • Hlusta á þætti
    • Stakir þættir
    • Spilari Lindarinnar
  • Á döfinni
    • Alþjóðleg bænavika
    • Alþjóðlegi trúboðsdagurinn
    • Bænaganga á sumardaginn fyrsta
    • Alfa námskeið
  • Hljóð og mynd
    • Upptökur og hljóðvinnsla
    • Frelsari allra tíma
  • Stuðningur
    • Nýr stuðningsaðili
    • Skattaafsláttur
    • Gjöf á móti gjöf
    • Hvað hefur Lindin gert fyrir þig?
    • Bankareikningar / Financial support
  • Gjöf-á-gjöf
  • Home
  • 2025
  • June
  • 24
  • „Enn er himnaríki líkt kaupmanni sem leitaði að fögrum perlum“
  • Boðskapur dagsins

„Enn er himnaríki líkt kaupmanni sem leitaði að fögrum perlum“

Lindin, kristið útvarp 24/06/2025

Boðskapur dagsins │ 24. júní 2025 │ Lindin, kristið útvarp │ Aðalsteinn Már Þorsteinsson

Góðan dag. Þú ert að hlusta á Lindina. Ég heiti Aðalsteinn Már Þorsteinsson og er í forsvari fyrir sjálfseignarstofnunina Lífsmótun sem m.a. gefur út Lykilorð. Ég flyt ykkur boðskap dagsins norðan úr Þingeyjarsveit.

Sá Guð sem ég þekki fyrir samfélag mitt við frelsara minn Jesú Krist og sem hægt er m.a. að kynnast líka fyrir Heilagan Anda Guðs með því að lesa Biblíuna er Guð sem reisir upp. Sjálfur hef ég oft fengið að reyna það þegar ég var beygður eða brotinn hvernig Guð mætti mér, kom inn í aðstæður mínar, jafnvel breytti þeim til hins betra eða gaf mér nægan styrk til þess að takast á við það sem án hans hefði reynst mér án nokkurs vafa mun erfiðara við að eiga.

Ég hef líka bæði heyrt ótalmarga vitnisburði annarra einstaklinga af því sama og verið sjálfur vitni af því hvernig Guð hefur endurmótað einstaklinga til meiri vegsemdar og virðingar en þeir höfðu nokkru sinni áður haft í lífinu. Frásagnir í Biblíunni gefa okkur líka innsýn inn í breytingar í lífi fólks og þau miklu umskipti sem verða á högum og þó ekki síður viðhorfi fólks til lífsins og tiverunnar þegar Jesús Kristur mætir þeim. Hlustendur Lindarinnar fá líka oft að heyra slíka vitnisburði og ég veit að sum ykkar eiga slíka vitnisburði sjálf. Einhver ykkar hafa líka e.t.v. leitað og eru að leita í trú vegna þess að þið hafið þarfnast og þarfnist þess enn að Guð reisi ykkur upp, að Jesús Kristur mæti ykkur og frelsi frá angist eða nauð, erfiðleikum, kvíða, ótta eða hverju öðru því sem heldur ykkur í fjötrum og hindrar að þið fáið notið ykkar til fulls í því frelsi sem aðeins fæst hjá Guði í lífi með Jesú Kristi.

Lífið fer á stundum um okkur óblíðum höndum sem þá stundum hefur þær afleiðingar að sjálfsmynd okkar verður bæld og bjöguð. Þar hafa margir fengið að reyna endurlausn við það að gefast Jesú Kristi og meðtaka heilagan anda Guðs inn í líf sitt. Andinn opnar augu þess sem við honum tekur og viðkomandi lærir að sjá sig og upplifa það í sínu hjarta að vera dýrmætt elskað djásn í augum Guðs. Fátt, ef nokkuð, er jafn dýrmætt í veröld okkar en að finna og eiga fullvissu þess að Guðs umvefjandi væntumþykja mun aldrei bregðast né þverra. Sá sem les í Biblíunni, orði Guðs, fær þar séð og getur því vitað í huga sér að svo er fyrir hvern þann sem trúir og fyrir náðargjöf Heilags anda öðlast sá sem leitar Guðs í bæn þá tilfinningu í hjarta sínu að vera elskaður.

Af þessum sökum og ýmsum öðrum er góður vani að lesa úr Biblíunni á hverjum degi og biðja til Guðs. Varla vill nokkur sá sem uppgötvað hefur heimsins dýrmætustu perlu missar sjónar af henni á ný. „Enn er himnaríki líkt kaupmanni, sem leitaði að fögrum perlum. Og er hann fann eina dýrmæta perlu fór hann, seldi allt sem hann átti og keypti hana.“ segir m.a. í Matteus 13.45-46 Og þó þekkjum við sjálfsagt velflest dæmi um einstaklinga sem hafa leift trú sinni að dofna, jafnvel svo mjög að hún hefur fjarað út. Slíkt er mikið hættuspil að ætla sér óhætt að mega treysta á að síðar veitist þá enn á ný tækifæri til þess að láta reyna á langlundargeð Guðs með að reisa sífellt upp aftur þann sem ekki sýnir nein merki þess að bera sjálfur nokkra ábyrgð á eigin vegferð.

Vissulega er sá Guð sem ég þekki, Guð sem reisir upp. En hann er þó alls ekki einvörðungu Guð sem reisir upp og samband mitt og hans er mun víðfemara og meira en bara í því formi hans sem frelsara míns, bjargvættar og styrkveitanda og míns sem þess sem þó vissulega þarfnast alls þessa. Guð þarf nefnilega líka stundum eins og að ná mér niður á jörðina – og ég að leyfa honum það. Því hin dýrmæta perla trúarinnar fæst eingöngu varðveitt í auðmjúku og hógværu hjarta þess sem er lítillátur og það verður að viðurkennast að þegar kemur að þessum þætti í sambandi mínu og Guðs, að ná mér niður á rétt plan, hef ég ekki alltaf reynst eins móttækilegur eins og þegar ég hef þarfnast hans til að reisa mig upp. Ég vona auðvitað að öðrum hafi reynst þetta mun greiðari leið en mér en mig grunar þó að stolt, hroki, dramb, dómharka og almennt sinnuleysi um neyð náungans komi það niður á eigin þægindum og lífsins gæðum. Allt þetta of fleira séu sterkar mannlegar hvatir sem læðast að mörgum í fjölbreytilegu formi. Því verður hver sá sem vill gæta að og varðveita sína dærmætu perlu trúarinnar að þekkja og eiga þann Guð sem ekki er einvörðungu þar til þess að reisa upp niðurbeygða heldur er og Guð sem leiðréttir og vandar um fyrir þeim sem ekki fetar í spor frelsarans, ekki fylgir fordæmi Jesú Krists í hógværð og náungakærleika.

Nú er hagkvæm tíð, nú er hjálpræðisdagur. Hver líðandi stund felur í sér tækifæri til iðrunar og yfirbótar. Þá stund er frelsarinn kemur til þess að vitja lýðs síns veit enginn og því ráð að slá því sem er áriðandi ekki á frest. Jesús segir í fjallræðu sinni, ég les fyrstu versin í 7. kafla Matteusarguðspjalls: „Dæmið ekki, svo að þér verðið ekki dæmd. Því að með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmd verða og með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða. Hví sérð þú flísina í auga bróður þíns en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu? Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns.“ Látum þessi orð frelsarans stöðugt áminna okkur á að við eigum framar öðru að gæta að okkur sjálfum, hvernig við breytum og hvað við segjum. Það er svo oft sem mörgum reynist auðveldara, eru þá stundum fljótir til, með að dæma náungann, sjá lesti hans og bresti, og líta jafnvel á það sem sitt heilaga göfuga hlutverk að segja honum syndanna til. Þeim sem þannig er farið, ættu að líta sér nær.

Ég bið: Faðir minn á himnum! Ég þakka þér að þú reisir upp niðurbeygða. Láttu þjóna þína ekki skorast undan því að opna hjarta sitt fyrir þér svo þeir fái framar öðru komið auga á sínar eigin syndir. Gefðu hjartans auðmýkt og forða okkur frá því að verða skinheilög, full af vandlætingu og fordómum gagnvart öðrum, gagnvart því sem við þekkjum ekki eða gagnvart því þegar trúsystkini okkar líta hluti, sem litlu máli skipta, öðrum augum en við svo við verðum á vissan hátt ólík. Hjálpa okkur sem fylgjum þér að vera þrátt fyrir fjölbreytileikann eitt í þér. Í Jesú nafni, Amen.

Aðalsteinn Már Þorsteinsson

About The Author

Lindin, kristið útvarp

See author's posts

Continue Reading

Previous: „Frið læt ég yður eftir“

Related Stories

Frið læt ég yður eftir
  • Boðskapur dagsins

„Frið læt ég yður eftir“

Lindin, kristið útvarp 27/05/2025
8-3-CH-Old-fashion-clock
  • Boðskapur dagsins

Óþreyja að gera betur

Lindin, kristið útvarp 27/03/2025
Mynd-2-Jesús-Jónas-og-Dómaldi
  • Boðskapur dagsins

Jesús, Jónas og Dómaldi

Lindin, kristið útvarp 25/03/2025

You may have missed

  • Boðskapur dagsins

„Enn er himnaríki líkt kaupmanni sem leitaði að fögrum perlum“

Lindin, kristið útvarp 24/06/2025
Frið læt ég yður eftir
  • Boðskapur dagsins

„Frið læt ég yður eftir“

Lindin, kristið útvarp 27/05/2025
Vonsvikinn maður
  • Fréttabréf

Vonlaus og niðurdreginn?

Hafsteinn Gautur Einarsson 01/05/2025
2025.04.16 Lokastaðan
  • Auglýsing

Hafsteinn Gautur Einarsson 16/04/2025
Lindin, kristið útvarp  |  Krókhálsi 4  |  110 Reykjavík  | Landsbankinn  0130-26-126868,  kt.  691194-2729 |  Sími 567-1818  |  www.lindin.is  |  lindin@lindin.is

Copyright © All rights reserved. | MoreNews by AF themes.