Finnst þér gott að fá hæfilega saltað saltkjöt, kartöflur, rófur og baunasúpu á Sprengidaginn?
Sprengidagurinn er eimitt á næsta leiti, þriðjudaginn 17. febrúar. Af því tilefni efnum við til saltkjötsveislu með baunasúpu.
.
Máltíðin kostar 3.900 krónur. Ellefu ára og yngri greiða 1.900 kr. Afkoman rennur til Lindarinnar.
Skráðu þig með því að smella á “Mæti” á viðburðinn á Facebook. Þannig getum við skipulagt innkaupin. Svo greiðir þú þegar þú mætir.
Einnig er hægt að skrá sig með því að hringja í síma 567-1818. Einnig með því að senda tölvupóst á stefan@lindin.is
.
Slepptu því að elda sjálfur og mættu með alla fjölskylduna. Engin fyrirhöfn, ekkert stress. Og þú styrkir Lindina í leiðinni. Eigðu samfélag með okkur að kveldi Sprengidags. Taktu með þér eiginkonuna, eiginmanninn, vininn, eða bara alla fjölskylduna og njóttu þessarar rammíslensku veislu.
.
Kærar þakkir Kefas, fyrir að lána okkur matsalinn.
Kærar þakkir Óli Haukur fyrir að græja matinn.
Kærar þakkir Óli Haukur fyrir að græja matinn.
Og kærar þakkir til þín fyrir að styðja við Lindina með því að mæta.
.
Hlökkum til að sjá ykkur. Bara gaman.
Stefán og Hafsteinn á útvarp Lindinni
.