Kristniboð á samfélagsmiðlum
1. febrúar 2026
Kæri hlustandi.
Það er gaman að segja frá því að Lindin fjölmiðlun fer nú af stað með nýtt verkefni sem snýst um kristniboð á samfélagsmiðlum. Lindin hefur fram að þessu, mest þjónað í gegnum kristið FM-útvarp, en til að ná til þeirra sem almennt eru ekki að hlusta á Lindina og hafa ekki meðtekið fagnaðarerindið, þá er þörf á nýjum áhrifaríkum leiðum. Nú förum við þangað sem þjóðin er, nefnilega á samfélagsmiðlana.
Við munum birta kostaðar auglýsingar á Facebook og Instagram til að ná til þeirra sem eru andlega leitandi og glíma við áskoranir lífsins. Þeir Facebook og Instagram notendur sem bregðast við þessum auglýsingum og taka spjallið við okkur, fá að heyra þann lífsbreytandi boðskap sem Biblían hefur að bjóða.
Hver auglýsing mun byggja á ákveðnu þema. Dæmi um slíka auglýsingu er hér til hægri en þar er þemað “Hvað hindrar mig í að finna tilgang minn í lífnu?” Hugmyndin er að þeir sem tengja við þessa spurning, smella á “Send message” – hnappinn og komast þannig í samband við okkur. Þannig náum við að svara og vonandi tengjast fólki.
Fólk leitar að lausnum og svörum við áskorunum lífsins. Við vitum líka að margir leita á kolröngum stöðum og enda í áfengi, fíkniefnum og öðru sjálfsskaðandi líferni.
Við ætlum að kynna fólki lausnina sem Guð býður upp á.
Hluti af þessu verkefni er að mynda góðan hóp kristinna einstaklinga sem hefur hjarta fyrir að ná til fólks með boðskap Biblíunnar.
Þetta þurfa að vera einstklingar af báðum kynjum og í öllum aldurshópum. Þegar andlega leitandi einstaklingur sendir okkur fyrirspurn þá pörum við hann við einn úr okkar hópi, einstakling af sama kyni og á svipuðum aldri og þessir tveir taka samtalið.
Nauðsynlegt er að byrja á að byggja upp traust. Þegar því er náð og fólk hefur áhuga á að vita meira, þá bjóðum við fólki í heimahóp, að hittast á kaffihúsi eða samtal í gegnum síma. Einnig er hægt að bjóða viðkomandi á Alfa-námskeið og á samkomu. Allt í því augnamiði að leiða fólk til Jesú og gera þau að lærisveinum, sem er hið endanlega markmið verkefnisins. Í ferlinu þarf trúboðinn að meta á hverjum tíma hvað hentar að segja og hvenær viðkomandi er tilbúinn í næsta skref.
Þetta trúboðsverkefni hefur fengið nafnið MTM, eða Miðlun-Til-Margföldunar. Í þessari aðferðarfræði erum við ekki að finna upp hjólið. Það eru trúboðssamtökin OneKingdom í Búdapest í Ungverjalandi sem hafa þróað þetta undanfarin ár og eru að kenna okkur að gera þetta með sem áhrifaríkustum hætti.
Sjá … https://onekingdom.team/
Við erum þrír sem höfum unnið saman að undanförnum að setja þetta í gang á Íslandi. Auk mín, eru það Ágúst Valgarð Ólafsson og Vincent Roberts, sem báðir eru sjálfstætt starfandi kristniboðar. Lindin er síðan baklandið og hjá henni er verkefnið vistað. Lindin er þekkt nafn í samfélaginu og þegar fólk spyr hverjir standi á bak við þessar auglýsingar, þá er sterkt að geta vísað á Lindina. Menn vita hvað hún er, hvað hún stendur fyrir og þannig er allt upp á borðinu.
Fjáröflun
Það kostar sitt að setja kostaðar auglýsingar á samfélagsmiðlana. Við viljum því varpa þeirri spurningu til þín, kæri viðtakandi, hvort þú sæir þér fært að styðja framtakið með mánaðarlegum stuðningi. Kannski ert þú nú þegar mánaðarlegur stuðningsaðili Lindarinnar, og þá kann ég þér þakkir fyrir, en ef þú hefur áhuga á að styðja þetta verkefni sérstaklega, þá væri það vissulega vel þegið. Sendu póst beint á mig, hafsteinn@lindin.is og við komum því í kring. Okkur langar að setja 50.000 kr. á mánuði í MTM-auglýsingar sem gerir 600 þkr á ári í auglýsingakostnað.
Kristniboðsskipunin í Matteusi 28:18-20 segir:
„Og Jesús kom til þeirra, talaði við þá og sagði: „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður og sonar og heilags anda og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.“
Þetta fréttabréf er svolítið langt. Ég veit. En takk samt fyrir að lesa alla leið hingað. Það segir mér að þú hefur hjarta fyrir þjóðinni og að Lindin nái lengra við boðun fagnaðarerindisins.
Guð blessi þig og þína.
Hafsteinn Gautur Einarsson, útvarpsstjóri