Á sumardaginn fyrsta bjóðum við sumarið velkomið með bænagöngu. Gengið er og beðið á yfir 20 stöðum á landinu. Með því að smella á hlekkina að neðan þá opnast yfirlitsblöð með gönguleggjum, göngustjórum og tímasetningum. Þessi blöð er siðan hægt að prenta út og taka með sér. Bænagangan er opin öllum og nýtt fólk er hjartanlega velkomið. Bara að mæta á upphafspunkt og hefja göngu og bæn í góðra manna hópi.

Eftir gönguna eða milli kl. 11:30 og 12, hittast hópar úr Reykjavík í Veginum, Smiðjuvegi 5, Kópavogi, í léttan hádegisverð og samfélag. Á landsbyggðinni fer það eftir hverjum stað fyrir sig, hvernig hittingum er háttað.

Smellið hér til að sjá gönguleggi á höfuðborgarsvæðinu.

Smellið hér til að sjá gönguleggi á landsbyggðinni.

Frekari upplýsingar fást hjá þeim sem halda utan um skipulag og undirbúning; Björn Hólm 867-5133 og Hafsteinn 893-9702.

 

Að neðan er kort af gönguleiðum á höfuðborgarsvæðinu.

 


    Lindin mín

    App Lindarinnar hefur fengið frábærar viðtökur. Það er notað 1.100 sinnum að meðaltali í hverjum mánuði. Svo hlusta margir á dagskrá Lindarinnar í beinni í gegnum appið.

    Smelltu á myndina að ofan til að eignast þína eigin Lind.

    Lindin, kristið útvarp │ Krókhálsi 4 │ 110 Reykjavík │ kt. 691194-2729 │ S: 567-1818 │ lindin@lindin.is