Dagsferð aftur á landnámsöld

Sumarferð Lindarinnar 2026

Lindin ætlar með hlustendur í sannkallaða ævintýraferð, laugardaginn 6. júní  (sjá skráningarform hér að neðan).

Um er að ræða ævintýraferð í íslenskri náttúru, þar sem við kíkjum aftur í tímann, aftur á landnámsöld og förum á slóðir Ingólfs Arnarssonar, þeim mæta kappa.

Ingólfshöfði er við ströndina suður af Öræfajökli í Austur-Skaftafellssýslu. Höfðinn er nefndur eftir Ingólfi Arnarsyni, sem sagt er að hafi haft þar vetursetu fyrsta veturinn eftir að hann nam hér land, en Hjörleifur fóstbróðir hans á að hafa farið lengra og haft vetursetu við Hjörleifshöfða. Í Ingólfshöfða er fjölbreytt fuglalíf og þar eru 99% líkur á að sjá lunda í návígi.

Til ferðarinnar leigjum við nýja rútu frá Kynnisferðum, ásamt bílstjóra sem keyrir okkur alla leið að Hofsnesi.  Ferðin sjálf yfir sandana og út í höfðann, tekur 30 mín, og er farin á stórri kerru, með nokkrum sætum og sem dregin er af traktor. Úti í Höfðanum fáum við leiðsögn frá þeim hjónum Matthildi og Einari sem starfrækja ferðaþjónustuna Öræfaferðir í Hofsnesi.  Ferðin er fyrir þá sem geta gengið smá halla uppá við. Hentar ekki þeim sem eru fótafúnir og treysta sér ekki í létta göngu. Samtals er gengið í 3 kílómetra úti í Höfðanum.

Verð:  25.000 kr. per mann, 12.000 kr. fyrir 11 ára og yngri.  Fjölskylduverð er  60.000 kr. fyrir allt að 5 manna fjölskyldu.

Innifalið er rútuferðin báðar leiðir, léttur hádegisverður í Hofsnesi og ferðin út í Ingólfshöfða ásamt leiðsögn. Á leiðinni verður stoppað í Laufey Bistro við Landeyjahöfn og á Klaustri. Hressing þar er á kostnað hvers og eins.

Skráið ykkur með því að fylla út formið hér að neðan. Nánari upplýsingar fást í síma 567-1818. Munið að skrá ykkur tímanlega, því ferðin gæti selst upp. Takmarkað sætaframboð.

Þessi sumarferð er fjáröflunarferð fyrir Lindina. Matta og Einar í Öræfaferðum gefa Lindinni þessa ferð fyrir allt að 50 manns en verð fyrir fullorðna er að öllu jöfnu 12.500 kr.  Rútuferð frá Reykjavík þessa vegalengd fram og til baka kostar almennt 20.000 kr., þannig að hér er í boði hagstætt verð.

Sem sagt sumarferð á vegum Lindarinnar, laugardaginn 6. júní og allt til styrktar Lindinni.

Hér að neðan er skráningarform til að fylla út og senda inn. Þetta verður alveg frábær ferð. Ég er farinn að hlakka til strax.

Go back

Your message has been sent

Warning
Warning
Warning
Warning

Warning.

Vinsamlegast millifærði svo upphæðina inn á bankareikning Lindarinnar, 0130-26-126868 og kt. 691194-2729.

Verð:    25.000 kr. per mann, 12.000 kr. fyrir 11 ára og yngri

Fjölskylduverð er  60.000 kr. fyrir allt að 5 manna fjölskyldu