Bænaátak
Bænafólk á Norðurlöndunum hefur ákveðið að sameinast í bænaátaki sem stendur yfir í 12 mánuði, allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Íslendingar taka þátt og langar okkur að hvetja þig til að vera með í átakinu með því að biðja í a.m.k. einn klukkutíma í hverri viku. Við á Íslandi munum biðja á miðvikudögum, frá miðnætti til miðnættis.
Bænaátakið hófst miðvikudaginn 14. október. Til að tryggja að bænakeðjan verði óslitin, skráir þú þig á vefsíðunni www.nordic365.org og velur þar eina klukkustund sem hentar þér.
Við skiptum hverri bænaklukkustund í þrennt þar sem beðið er fyrir:
– þeim stað þar sem fyrirbiðjandinn býr
– Íslandi
– Norðurlöndunum
Stöndum saman í bæn með hinum Norðurlöndunum sem hafa kross Krists í þjóðfánanum.
Í síðari Kroníkubók 7:14 segir
„ ….og þjóð mín, sem nafn mitt hefur verið hrópað yfir,[ auðmýkir sig, biður, leitar auglits míns og lætur af illri breytni sinni, mun ég heyra á himninum, fyrirgefa synd hennar og græða upp land hennar.“
Allar nánari upplýsingar og skráning á www.nordic365.org