Skip to content

Lindin

Lifandi útvarp

Bannerinn-2
Primary Menu
  • Heim
  • Um Lindina
    • About Lindin
    • Hugsjón
    • Frelsisbænin
    • Saga Lindarinnar
    • Sagan í ártölum
    • Salur til leigu
    • Myndband: Tónlist og trúboð í 10 ár
    • Starfsfólk
    • Stjórn Lindarinnar
    • Lausanne sáttmálinn
    • Bréf til þín
    • Viltu hjálpa til?
    • Já, ég vil hjálpa til
    • Ertu lærisveinn?
    • Friðhelgisstefna
    • Vitnisburðir
  • Dagskrá
    • Vikudagskráin
    • Lindin „í beinni“
    • Boðskapur dagsins
      • Jesús, Jónas og Dómaldi
      • Í þörf fyrir náð Guðs
      • Vitnisburðir í Biblíunni
    • Uppáhalds lögin mín
    • FM tíðnikort
    • Brandarar
  • Bænir
  • Appið
    • Sækja Lindar appið
    • Hlusta á þætti
    • Stakir þættir
    • Spilari Lindarinnar
  • Á döfinni
    • Dagsferð aftur á landnámsöld
    • Alþjóðleg bænavika
    • Alþjóðlegi trúboðsdagurinn
    • Bænaganga á sumardaginn fyrsta
    • Alfa námskeið
  • Hljóð og mynd
    • Upptökur og hljóðvinnsla
    • Frelsari allra tíma
  • Stuðningur
    • Nýr stuðningsaðili
    • Skrá greiðslukort
    • Skattaafsláttur
    • Gjöf á móti gjöf
    • Hvað hefur Lindin gert fyrir þig?
    • Bankareikningar / Financial support
  • Gjöf-á-gjöf
  • Home
  • 2026
  • April
  • 30
  • Lausanne
  • Fréttabréf

Lausanne

Hafsteinn Gautur Einarsson 30/04/2026
Zight 2026-4-30 at 4.35.48 PM

Kæri hlustandi.

Sumir sem heyra nafnið Lausanne, halda að hér sé á ferðinni ítalskur pastaréttur (“Lasagna”). Það er þó alls ekki raunin. Um er að ræða alþjóðlega kristilega samstarfshreyfingu sem lítið fer fyrir í umræðunni hér á landi. Undirritaður er nýkominn af ráðstefnu Lausanne hreyfingarinnar í Osló í Noregi. En þar sem mörg ykkar þekkja lítið til þessarar hreyfingar þá langar mig að stikla á stóru og kynna fyrir ykkur uppruna hennar og hugsjón.

Lausanne-hreyfingin er alþjóðleg evangelísk samvinnuhreyfing sem varð til eftir þing sem haldið var í Lausanne í Sviss árið 1974. Á þinginu var undirritaður sáttmáli sem margar kirkjur og kristin félög hafa getað notað sem samstarfsgrundvöll æ síðan, þó áherslur þeirra innbyrðis séu ólikar.

Frumkvæðið að þinginu átti Billy Graham en helsti höfundur sáttmálans var enski guðfræðingurinn John Stott. Reyndar var sáttmálinn líka mótaður í umræðum og endurgjöf frá þátttakendum á þinginu. Hann var síðan samþykktur sameiginlega af um 2.700 fulltrúum á þinginu.

Lausanne sáttmálinn er aðgengilegur á vefsíðu Lindarinnar. Hann er sex blaðsíður að lengd í íslenskri þýðingu sr. Kjartans Jónssonar. Sáttmálinn er líka trúarlegur grundvöllur Lindarinnar, enda segir í 3. grein samþykkta félagsins; „Félagið [Lindin] skal leitast við að starfa í samræmi við Lausanne sáttmálann sem samþykktur var árið 1974”.

Lausanne hreyfingin er ekki hefðbundin stofnun heldur frekar samstarfsnet sem tengir saman leiðtoga, hugmyndir og samstarf. Kjarnahugsjónin er þríþætt og miðar að því að fagnaðarerindið ná til allra þjóða heims, kirkjur verði stofnaðar sem víðast og að kristin forysta ekki aðeins vaxi og dafni í samfélögum, heldur hafi sem mest áhrif.

Í stuttu máli: „trúboð til alls heimsins“ (e. global evangelization).

Á ráðstefnunni í Osló sem við Sigríður Schram hjá SÍK, fórum á, kynnti Jim Memory, svæðisstjóri Lausanne fyrir Evrópu, niðurstöður könnunar sem hreyfingin lét gera nýverið. Niðurstöður hennar sýna stöðu og væntingar um framgang kristinnar kirkju á næstu árum. Evrópa sem heimsálfa, kemur ekkert sérstaklega vel út í þeirri könnun, eins og sjá má á línuritinu að neðan:

Evrópa þarf að taka sig á eins og sjá má. Við þurfum að efla samstarf og samstöðu milli landa og við hér á Íslandi þurfum að sækja okkur stuðning í tengslaneti Lausanne.

Á ráðstefnunni í Osló var einnig fjallað um Young Leaders Gathering í Brasilíu í mars á næsta ári, sem Lausanne hreyfingin stendur fyrir. 1.200 ungmennum á aldrinum 25-35 ára verður boðið að taka þátt og munu þar fá þjálfun og hvatningu til áframhaldandi starfs á akri Drottins.

Í kjölfar YLG4 verður þessu unga fólki boðin þjálfun næstu 10 árin, hvorki meira né minna. Tengslunum við Lausanne verður þannig fram haldið með stuðningi, hvatingu og fræðslu.

Mælir þú með einhverjum Íslendingi á þessum aldri til að fara á ráðstefnuna? Viltu fjárfesta í unga fólkinu okkar og styðja þau til þátttöku? Vertu þá í bandi við okkur á Lindinni og komdu með uppástungu. Vil viljum koma því í kring að fleiri sæki þessa ráðstefnu.

Sumarkveðja,

Hafsteinn G. Einarsson, útvarpsstjóri

About The Author

Hafsteinn Gautur Einarsson

See author's posts

Post navigation

Previous: Þakkarskuld
Next: Símavin vantar

Related Stories

Aðalfundur-Lindarinnar-TITILMYND
  • Fréttabréf

Fimm brauð og tveir fiskar duga ekki lengur

Hafsteinn Gautur Einarsson 01/06/2026
Titilmynd-FEB-2026---2
  • Fréttabréf

MTM

Hafsteinn Gautur Einarsson 17/02/2026
MYND-2
  • Fréttabréf

Sex áskoranir

Hafsteinn Gautur Einarsson 01/01/2026
Lindin, kristið útvarp  |  Krókhálsi 4  |  110 Reykjavík  | Landsbankinn  0130-26-126868,  kt.  691194-2729 |  Sími 567-1818  |  www.lindin.is  |  lindin@lindin.is

Lindin

Lindin, kristið útvarp │ Krókhálsi 4 │ 110 Reykjavík │ kt. 691194-2729 │ Banki 0130-26-126868 │ S: 567-1818 │ lindin@lindin.is

Drottinn blessi þig, kæri hlustandi. | MoreNews by AF themes.