GO DAGURINN

Hefurðu heyrt um GO DAGINN?

Ef ekki, þá er tími til kominn.

Þannig er að trúboð getur verið erfitt. Sumum finnst jafnvel erfitt að heyra orðið “trúboð” sagt upphátt …. þá fer allt í hnút!

En málið er að Kristniboðsskipunin í Biblíunni er skýr; við eigum öll að boða okkar kristnu trú, í einni eða annarri mynd. Og gera það reglulega.

Meira um málið á alþjóðlegu GO Movement vefsíðunni.

Í raun er verkefnið ekki flókara en svo að segja öðrum frá því sem Guð hefur gert í þínu lífi. Og ekki finnst okkur nú leiðinlegt að tala um okkur sjálf.

GO DAGURINN er laugardagurinn 18. maí.

Á þeim degi, skorum við á þig að vitna fyrir a.m.k. einni manneskju. Heilagur andi mun koma þér til hjálpar, sannaðu til.

Allir geta náð til einhvers. Saman náum við til alls heimsins.

 

 UNDIRBÚNINGUR

Á þeim 18 dögum fram að trúboðsdeginum þá getur þú undirbúið þig með því að:

1. Kynna þér bækling á íslensku sem heitir 3 skref. Jesús elskar alla menn og vill að allir komist til lifandi trúar á hann. Bæklingurinn sýnir hve auðvelt það er að brydda upp á samræðum um Jesú Krist hvar sem er og hvenær sem er.

2. Biðja fyrir deginum. Biðja Guð að leiða þig að rétta fólkinu sem er tilbúið að heyra fagnaðarerindið.  Biðja Guð að mýkja hjörtu þeirra og opna fyrir sannleikanum. Einnig að biðja fyrir þér að þú fáir djörfung og kraft til að vitna. Biddu daglega.

3. Senda okkur póst á lindin@lindin.is með textanum;  “Ég tek þátt og ætla að vitna um freslara minn Jesú Krist á alþjóðlega trúboðsdeginum 18. maí.”  Með því að gera það þá skuldbindur þú þig til verksins og eykur líkurnar á framkvæmdinni.

Kærleikskveðja,

Hafsteinn á Lindinni

 


    Lindin mín

    App Lindarinnar hefur fengið frábærar viðtökur. Það er notað 1.100 sinnum að meðaltali í hverjum mánuði. Svo hlusta margir á dagskrá Lindarinnar í beinni í gegnum appið.

    Smelltu á myndina að ofan til að eignast þína eigin Lind.

    Lindin, kristið útvarp │ Krókhálsi 4 │ 110 Reykjavík │ kt. 691194-2729 │ S: 567-1818 │ lindin@lindin.is