Kristin gildi, menning og arfleifð

Kæri hlustandi Lindarinnar.

Mig undar oft að heyra í þjóðfélagsumræðunni, þegar rætt er um stöðu íslensks samfélags, hvað lítið er gert úr kristnum gildum og kristinni arfleifð þjóðar okkar. Það er eins og fólk haldi að dugnaður okkar einn og sér hafi gert samfélagið eins ákjósanlegt og aðlaðandi og raun ber vitni. Þúsundir útlendinga sækjast eftir að flytja hingað og búa. En margir virðast ekki sjá hvað kristin trú hefur gert fyrir okkar menningu í gegnum aldirnar. Hún er í raun samofin okkar siðum og menningu.

Kíktu á myndina hér til hliðar. Sérðu eitthvað kristilegt á þessari mynd? Hvað stendur uppúr?

——————-

Það er varla til það bæjarfélag á Íslandi sem ekki hefur fallega kirkju á besta stað í bænum. Sýnilegur minnisvarði um okkar kristnu sögu og arfleifð. En fylgir eitthvað annað og dýpra okkar kristnu trúarsögu, sem ekki sést með berum augum? Hvað heldur þú, kæri hlustandi?

Myndin að ofan er annars af Siglufjarðarbæ og kirkjunni í miðjum bænum.

Ný ríkisstjórn sem fyrirbænarefni

Nú þegar kosningar til Alþingis eru afstaðnar þá er vert að biðja fyrir væntanlegri ríkisstjórn og alþingismönnum öllum. Að Guð blási þeim visku í brjóst og að þeir fari vel með löggjafar- og framkvæmdavaldið sem þeim er falið, til blessunar fyrir land og þjóð. Megi vilji Guðs ráða þar hugsun og gjörðum.

Haustfjáröflun Lindarinnar

Fjáröflun stóð yfir í október og fram í nóvember sem endaði með því að við náðum 2,8 mkr af 3 mkr markmiði. Enn á þó eftir að sjá hvað kom inn í gegnum 900-númerin sem voru í gangi allan nóvembermánuð. Vonandi náum við markmiðinu þegar upp er staðið.

Flutningur um 300 metra

Lindin þarf að flytja sig yfir í annað mastur á Vatnsendahæð með sinn útsendingarbúnað. Við höfum verið í mastri Mílu með loftnetið okkar, sem varpar yfir allt höfuðborgarsvæðið, en Míla er að loka sinni aðstöðu á Vatnsenda og því munum við flytja okkur yfir í mastur Neyðarlínunnar sem er þarna rétt hjá. Þegar þar að kemur, þá verður eitthvað rask á útsendingu en vondandi ganga umskiptin hratt og vel fyrir sig. Við látum hlustendur vita hvernig þetta verður þegar nær dregur flutningi.

Ein milljón manna

Það er heilmikið í gangi í kirkjustarfi á Íslandi og er það vel. Ég vil nefna eitt sérstaklega og það er trúboðsátak sem fram fer í Reykjavík næsta sumar, nánar tiltekið frá 21. júní til 6. júlí, 2025. Átakið kallast The Million Month og fer fram í 25 borgum í Evrópu á sama tíma. Markmiðið er að vitna fyrir samtals einni milljón manna í þessum borgum á þessum tveimur vikum.

Nú er verið að kalla í áhugasama einstaklinga á Íslandi til að taka þátt í undirbúningnum í vetur. The Million Month er nefnilega stórátak, sem felur í sér að farið verður út á götur Reykjavíkur í trúboð, tónlist og drama verður í boði, auk þess sem vitnisburðar- og lofgjörðarstundir verða í kirkjum landsins. Þetta verður eitthvað! Og þér er boðið að taka þátt.

Þú færð nánari upplýsingar með því að smella á þessa krækju The Million Month. Einnig getur þú sent póst á einn af skipuleggjendunum, Miriam Von Rotz, á netfangið reykjavik@2025.awakeningeurope.com, ef þú hefur spurningar. Fjölmargir útlendingar koma erlendis frá og taka þátt í trúboðsverkefninu.

Hér er síðan hægt að skrá sig til þátttöku og fá upplýsingar og fréttir sendar reglulega með tölvupósti. Milljónamánuðurinn byggir á eftirtöldum versum í Rómverjabréfinu:

 

„En hvernig eiga menn að geta ákallað þann sem þeir trúa ekki á? Og hvernig eiga þeir að trúa

á þann sem þeir hafa ekki heyrt um? Og hvernig eiga þeir að heyra án þess að einhver prédiki?

Og hver getur prédikað nema hann sé sendur? Svo er og ritað: „Hversu fagurt er fótatak

þeirra sem boða fagnaðarerindið um hið góða.“ – Róm. 10:14-15

 

Ég vona ég að þú eigir yndislega aðventu og kærleiksrík jól framundan.

Jólakkveðja,

Hafsteinn G. Einarsson, útvarpsstjóri

 

 


    Lindin mín

    App Lindarinnar hefur fengið frábærar viðtökur. Það er notað 1.100 sinnum að meðaltali í hverjum mánuði. Svo hlusta margir á dagskrá Lindarinnar í beinni í gegnum appið.

    Smelltu á myndina að ofan til að eignast þína eigin Lind.

    Lindin, kristið útvarp │ Krókhálsi 4 │ 110 Reykjavík │ kt. 691194-2729 │ S: 567-1818 │ lindin@lindin.is