Fréttabréf – nóvember

Látum Ljósin Loga 24/7 – Nóvember 2026

Biðjum fyrir hjarta þjóðarinnar

„Þér eruð ljós heimsins. Borg, sem á fjalli stendur, fær ekki dulist.“    — Matteus 5:14

Kæru bænavinir!

Nóvember er genginn í garð. Dagarnir styttast, myrkrið færist yfir og við Íslendingar kveikjum ljós í gluggum til að lýsa upp skammdegið. Það er eitthvað fallegt við það að sjá ljós loga í glugga þegar dimmt er úti. Ljósið minnir okkur á hlýju, von og líf.

En á bak við þessa upplýstu glugga býr fólk. Fólk með drauma, vonir, áhyggjur og baráttu. Sumir búa við gleði og frið, aðrir glíma við erfiðleika sem enginn sér. Sumir eiga sterkt samfélag fjölskyldu og vina, á meðan aðrir upplifa djúpann einmanaleika, jafnvel þótt þeir séu umkringdir fólki.

Og svo eru það hinir fjölmörgu sem aldrei hafa kynnst Jesú Kristi sem persónulegum frelsara sínum.

Hvað með að nota nóvembermánuð til að biðja Guð að opna augu okkar fyrir fólkinu á bak við gluggana?

Hvað ef við myndum biðja hann að gefa okkur sama kærleika og Jesús bar til fólksins sem hann mætti?

Því vakning snýst ekki fyrst og fremst um fjölmennar samkomur, kraftmikla tónlist eða stórkostlega atburði. Vakning snýst um fólk. Um hjörtu sem vakna til lífsins, einstaklinga sem finna frelsi í Kristi, fjölskyldur sem endurreistar eru og samfélag sem umbreytist fyrir kraft Heilags anda.

 

1. Þegar Jesús horfði á mannfjöldann

„Er hann sá mannfjöldann kenndi hann í brjósti um hann því menn voru hrjáðir og umkomulausir eins og sauðir er engan hirði hafa.“   — Mat 9:36

Þessi orð lýsa hjarta Jesú. Hann sá ekki bara mannfjölda. Hann sá einstaklinga. Hann sá þjáningu þeirra, þörf þeirra fyrir von og þá andlegu neyð sem margir þeirra bjuggu við.

Jesús brást ekki við með fordæmingu eða afskiptaleysi. Hann kenndi í brjósti um fólkið.

Og strax í framhaldinu sagði hann lærisveinum sínum að uppskeran væri mikil en verkamennirnir fáir. Þess vegna skyldu þeir biðja Drottin uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar.

Þarna sjáum við mikilvæga tengingu: Samúð leiðir til bænar og bæn leiðir til þjónustu.

Við þurfum að biðja Guð að gefa okkur nýja sýn á íslensku þjóðina. Ekki sem þjóð sem hefur hafnað kristinni trú, heldur sem einstaklinga sem Guð elskar og þráir að eignast samfélag við.  Við þurfum að sjá Ísland með augum Jesú.

 

2. Biðjum fyrir þeim sem glíma við myrkur

Það er margt í íslensku samfélagi sem kallar á bænir okkar.  Við sjáum fjölskyldur sem eiga erfitt með að ná endum saman. Við heyrum af börnum og ungmennum sem glíma við kvíða, félagslega einangrun og vanlíðan. Við vitum af fólki sem berst við fíkn, brostin sambönd, veikindi og sorg.

Á sama tíma lifum við í samfélagi þar sem hraðinn er mikill, áreitið stöðugt og margir eiga erfitt með að finna kyrrð og tilgang.

Við þurfum ekki að leita langt til að finna fólk sem þarfnast fyrirbænar.

Í Jesaja 58 er okkur bent á að sönn guðrækni birtist meðal annars í því að leysa fjötra ranglætis, hjálpa þeim sem líða skort og sinna þeim sem þurfa á okkur að halda. Þar er einnig að finna þetta stórkostlega fyrirheiti:

„Þá rennur ljós þitt upp í myrkrinu og niðdimman kringum þig verður sem hábjartur dagur.“
— Jesaja 58:10

Þetta er öflug áminning fyrir okkur sem erum þátttakendur í Látum ljósin loga. Bænin okkar má ekki einangrast frá lífinu utan veggja kirkjunnar. Við biðjum Guð að umbreyta þjóðinni, en jafnframt þurfum við sjálf að vera reiðubúin að verða svar við bænum okkar.

Kannski er einhver í nágrenni þínu sem þarfnast heimsóknar. Kannski er fjölskylda sem þarfnast hjálpar. Kannski er vinnufélagi sem þarf einfaldlega að heyra að einhverjum þyki vænt um hann.

Biðjum um opin augu, opið hjarta og opnar dyr.

 

3. Hvað ef vakningin byrjar við eldhúsborðið?

Þegar við hugsum um andlega vakningu sjáum við gjarnan fyrir okkur troðfullar kirkjur, fólk sem gefur Jesú líf sitt og samfélag sem tekur miklum breytingum.

Og vissulega biðjum við um slíka vakningu!

En hvað ef fyrstu merki vakningar birtast við eldhúsborð á íslensku heimili?

Þegar hjón sem hafa fjarlægst hvort annað ákveða að fyrirgefa. Þegar faðir tekur utan um son sinn og segir honum að hann elski hann. Þegar ung manneskja sem hefur misst vonina finnur að Guð hefur ekki gleymt henni. Þegar einstaklingur opnar Biblíuna í fyrsta sinn og uppgötvar að Jesús er lifandi.

Hvað ef vakning byrjar með einu samtali, einni bæn eða einni kærleiksríkri athöfn?

Í Postulasögunni,16. kafla, lesum við um fangavörðinn í Filippí sem tók trú á Jesú og heimili hans með honum. Guð snerti ekki aðeins einn einstakling heldur hafði það áhrif á alla fjölskylduna.

Við skulum því biðja sérstaklega fyrir íslenskum heimilum í nóvember. Fyrir hjónaböndum, foreldrum, börnum, afa og ömmum, einstæðum foreldrum og þeim sem búa einir.

Biðjum að heimili landsins verði staðir þar sem friður Guðs fær að ríkja og kærleikur Krists verður sýnilegur.

 

4.  Bænaáherslur fyrir nóvember

Í þessum mánuði hvetjum við allar kirkjur og bænafólk til að leggja sérstaka áherslu á:

  1. Börn og ungmenni Íslands
    Biðjum fyrir andlegri og líkamlegri heilsu þeirra, öryggi, vináttu og framtíð. Biðjum fyrir skólum landsins, kennurum og foreldrum. Biðjum að unga kynslóðin fái að kynnast Jesú og uppgötva að líf hennar hefur tilgang.
  2. Fjölskyldur og heimili
    Biðjum fyrir hjónaböndum, samböndum og samskiptum innan fjölskyldna. Fyrir þeim sem glíma við fjárhagserfiðleika, húsnæðisóöryggi, heilsubrest eða ágreining. Biðjum um sátt, fyrirgefningu, kærleika og endurreisn.
  3. Einmana fólk og þau sem glíma við vanlíðan
    Biðjum fyrir öldruðum, sjúkum og þeim sem glíma við þunglyndi. Einnig þeim sem glíma við kvíða eða fíkn og þeim sem upplifa sig utangarðs. Biðjum að Guð sendi fólk inn í líf þeirra sem miðlar von, vináttu og kærleika.
  4. Leiðtogar og ákvarðanataka í samfélaginu
    Biðjum fyrir forseta Íslands, Alþingi, ríkisstjórn, sveitarstjórnum og þeim sem bera ábyrgð á menntun, heilbrigðisþjónustu og velferð landsmanna. Biðjum um visku, réttlæti, heiðarleika og að ákvarðanir þeirra stuðli að farsæld þjóðarinnar. Minnumst orða Páls í 1. Tímóteusarbréfi 2:1–2 um að biðja fyrir öllum mönnum og þeim sem fara með völd.
  5. Kirkjan – að hún verði ljós og von í samfélaginu
    Biðjum að kristnir einstaklingar og söfnuðir um allt land fyllist kærleika, djörfung og krafti Heilags anda. Að við sjáum tækifærin í kringum okkur og séum fús til að þjóna. Biðjum að eining meðal kristinna verði sýnileg og að fólk þekki okkur af kærleikanum sem við berum hvert til annars.

 

5. Ein manneskja – þrjátíu dagar

Við leggjum fram áskorun fyrir nóvember.

Veldu eina manneskju sem þú veist ekki til að hafi tekið á móti Jesú Kristi og biddu sérstaklega fyrir henni, á hverjum degi, alla 30 daga mánaðarins.

Það getur verið fjölskyldumeðlimur, vinur, nágranni eða vinnufélagi.

Biddu Guð að blessa þessa manneskju, opna hjarta hennar fyrir fagnaðarerindinu og gefa þér tækifæri til að sýna henni kærleika Krists í verki.

Þú þarft ekki að þrýsta á neinn eða hafa öll svörin. Vertu einfaldlega tilbúin(n) að elska, hlusta, hjálpa og segja frá voninni sem þú hefur fundið í Jesú.

Ímyndaðu þér ef þúsund kristnir einstaklingar á Íslandi myndu biðja daglega fyrir þúsund manneskjum í nóvember. Þúsund nöfn borin fram fyrir hásæti Guðs, dag eftir dag!

Við vitum ekki hvernig Guð svarar bænum okkar, en við vitum að hann heyrir þær.

 

6. Höldum ljósinu logandi!

Sólarhringsbænin Látum ljósin loga hófst 7. september síðastliðinn. Síðan þá hefur bænafólk úr kirkjum og kristnum samfélögum tekið þátt í að halda bæninni gangandi og sífellt eru fleiri að bætast við. Dagatalið á Prayer 24-7 sýnir í dag 63% dekkun á vikunni. Við stefnum á að þekja alla vikuna í bæn.

Verkefnið er enn hið sama: Að sameinast í stöðugri bæn fyrir Íslandi, allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.

Við þurfum fleiri kirkjur, fleiri bænahópa og fleiri einstaklinga til að taka þátt. Hver klukkustund skiptir máli. Hver bæn skiptir máli.

Drottinn, gef okkur þitt hjarta fyrir þjóðinni okkar. Opnaðu augu okkar fyrir þeim sem þarfnast kærleika þíns. Sameinaðu kirkjuna þína, fylltu okkur Heilögum anda og notaðu okkur til að bera ljós þitt inn í myrkrið. Látum okkur ekki aðeins þrá vakningu, heldur vera reiðubúin að taka þátt í því sem þú vilt gera. Í Jesú nafni. Amen.

 

Með kærleikskveðju og þökkum fyrir samstöðuna,

Hafsteinn G. Einarsson (í verkefnishóp Látum ljósin loga 24/7)