Við þurfum reglulega að bæta eldivið á bænaeldinn til að viðhalda bænaátaki eins og Látum ljósin loga. Hér er hvatning frá Ágústi Valgarð og þrjú bænarefni fyrir septembermánuð.
1. Biðjum Guð að draga fólk inn í bænaátakið
Þakið á húsinu okkar á Selfossi lekur og ég er að endurnýja það. Þetta er mikil vinna. Klukkustundirnar sem ég hef fólk með mér í vinnu, eru ólíkar þeim þegar ég er einn að bagsa. Margt get ég alls ekki gert án hjálpar.
Vakning á Íslandi er einmitt þannig. Enginn getur það hjálparlaust. Ef við erum upptekin af því að gagnrýna aðra eða spila sóló missum við af sumu því besta sem Guð vill gefa okkur.
Guð hefur plön fyrir Ísland og hann vill hjálpa.
2. Kroníkubók 16:9a segir:
„Því að augu Drottins hvarfla um alla jörðina, til þess að hann megi sýna sig máttkan þeim til hjálpar, sem eru heils hugar við hann.”
Augu Drottins leita ekki að því hvort hann vilji — hann vill. Þau leita að þeim sem eru heils hugar við hann, svo hann geti sýnt sig máttugan í og í gegnum líf þeirra. Hann treystir mætti sínum ekki þeim sem hunsa hann, því slíkur máttur án heilshugar hjarta getur valdið skaða.
Guð þráir að starfa meira á Íslandi. Þú og ég getum verið verkfæri hans, ef við leyfum honum það. Það er mikilvægur hluti af Látum ljósin loga: að Guð dragi inn fólk sem vill leyfa honum að nota sig.
Bæn: Drottinn, dragðu inn fólk sem vill leyfa þér að nota sig.
En það er ekki nóg að stíga inn. Næsta skref er að grafa gryfjur …..
2. Biðjum Guð að hjálpa okkur að grafa gryfjur í lífi okkar svo meira pláss sé fyrir hann.
Til að vera heils hugar við Drottinn þurfum við að losa okkur við allt sem truflar og búa til meira pláss fyrir Drottinn í lífi okkar.
Í 2. Konungabók, kafla 3, er vatnslaus her fastur í eyðimörk. Þeir fara og hitta Elísa spámann sem segir (v16-17):
„Svo segir Drottinn: Gjörið gryfju við gryfju í dal þessum, því að svo segir Drottinn: Þér munuð hvorki sjá vind né regn, og þó mun þessi dalur fyllast vatni, svo að þér megið drekka, svo og her yðar og skepnur.“
Þeir þurfa að grafa gryfjurnar áður en vatnið byrjar að flæða. Það er of seint að byrja eftir að vatnið kemur.
Við biðjum Guð um vakningu, það er vel. En hvort erum við að bíða eftir Guði eða Guð að bíða eftir okkur?
Við segjum: Hvenær, Guð, ætlar þú að senda vakningu? Komdu, Drottinn! Við bíðum eftir að Guð sendi vakningu.
En hvað ef gryfjurnar okkar til að taka við vatninu og vakningunni eru ekki tilbúnar? Getur verið að af náð sinni bíði Guð eftir því að við séum tilbúin fyrir það sem hann vill gera?
Að grafa gryfju getur verið að iðrast, en það getur líka verið að gera sig tilbúinn með öðrum hætti.
Ég trúi því að Guð muni senda vakningatíma yfir Ísland á minni ævi. Ég trúi að það verði tímar þar sem ungt fólk kemur til okkar hópum saman því það vill fylgja Jesú og læra að vera lærisveinar hans. Ef 50, 100 eða 200 af ungu fólki kæmi núna þá værum við ekki tilbúin. Það væri sorglegt því þá myndu þau ekki varðveitast.
Sum okkar þurfa að gera sig tilbúin til að gera aðra að lærisveinum. Það er gryfjan sem við þurfum að grafa. Önnur okkar þurfa að snúa sér frá spilltum hlutum og gefa Guði meira pláss. Hvernig lítur þín gryfja út? Hvað er Guð að kalla þig til að gera?
Bæn: Guð, hjálpaðu okkur að grafa gryfjur áður en vatnið kemur.
3. Biðjum Guð að tala til okkar og gefa okkur sýn fyrir það sem hann vill gera og það sem er á hans hjarta fyrir Ísland.
Bænaátak er ferðalag og öll ferðalög hafa upphafsstað og áfangastað. Til að hvetja okkur á leiðinni og vita hvert við erum að fara þurfum við að sjá áfangastaðinn fyrir okkur.
Ég hef ýmsar hugmyndir um hvað væri gott fyrir Ísland en það eru ekki mínar hugmyndir sem við þurfum heldur Drottins. Ísland virkar ekki án Guðs og við þurfum leiðir Guðs út úr þeim ógöngum sem flest okkar sjá að við erum komin í með land okkar og þjóð.
„En Samúel þekkti ekki enn Drottin, og honum hafði ekki enn birst orð frá Drottni. Þá kallaði Drottinn enn á Samúel, í þriðja skiptið. Og hann reis upp og fór til Elí og sagði: „Hér er ég, því að þú kallaðir á mig.“ Þá skildi Elí að það var Drottinn sem var að kalla á sveininn. Fyrir því sagði Elí við Samúel: „Far þú og leggstu til svefns, og verði nú á þig kallað, þá svara þú: „Tala þú, Drottinn, því að þjónn þinn heyrir.““ Fór Samúel þá og lagðist til svefns á sínum stað.” – 1. Samúelsbók 3:7-9
Þarna er Samúel aðeins ungur drengur. Hann þekkti ekki muninn á rödd Guðs og rödd Elí. Við þurfum fólk, bænafólk og leiðtoga, sem þekkir rödd Guðs. Við lærum að þekkja rödd Guðs m.a. með því að verja tíma í bæn. Aðeins með því að heyra rödd Guðs og hjarta hans getur hann gefið okkur sýn (áfangastað) og það sem er á hans hjarta fyrir Ísland. Guð vill gefa okkur hjarta sem brennur fyrir því sem hann vill gera. Slíkt hjarta brennur í bæn og endist í bæn.
Bæn: Talaðu Drottinn, því þjónn þinn heyrir. Gefðu okkur hjarta þitt fyrir Ísland.
Ágúst Valgarð Ólafsson, september 2026
P.s. Það má lesa meira um það að grafa gryfjur í bókinni „Þessi dalur mun fyllast vatni“, á lindin.is/vakning
.