Flest fyrirtæki eru rekin með fjárhagslegan ávinning að markmiði. En þau geta líka starfað fyrir þá hugsjón að byggja upp starfsmennina, blessa samfélagið og efla ríki Guðs, samhliða fjárhagslegum ávinningi.
Lindin fjölmiðlun, í samstarfi við Europartners í Hollandi, boða til tveggja daga ráðstefnu, 11. og 12. september, þar sem við skoðum fyrirtækjarekstur með augum Guðs. Biblían er með fullt af leiðbeiningum um þessi mál og það er spennandi að skoða möguleikana saman. Aðeins völdum aðilum er boðin þátttaka og fjöldinn er takmarkaður við 30 manns. Ráðstefnan fer fram á ensku.
Ef þú hefur áhuga á þátttöku, fylltu þá út formið hér neðst á síðunni.
Dags. og tími: fös. 11. og lau. 12. september 2026
Staður: Fundarsalurinn Kabarett á Grand Hotel Reykjavík.
Þátttökugjaldið er 34.000 kr. Innifalið er ráðstefnan sjálf, ráðstefnugögn, kvöldverður á Grand Hotel Reykjavík á föstudeginum, hádegisverður á laugardeginum og kaffiveitingar.
Hollendingurinn Wouter Droppers náði miklum árangri í viðskiptum á sínum tíma. Stóð uppi sem sigurvegari, þénaði vel og framtíðin var björt. En hann spurði sig “Og hvað svo?”. Hann fann tómleika í hjartanu og spurði sig hvort þetta væri virkilega fjallstoppurinn. Wouter var og er kristinn og fór í kjölfarið að velta fyrir sér “æðri og himneskari” tilgangi með fyrirtækjarekstri. Frá þessu ætlar hann að segja okkur á ráðstefnunni og eiga gagnvirkt og hreinskilið spjall þátttakendur. Svipaða sögu á Dennis de Graf sem einnig talar á fundinum. Við munum ræða hvernig við samþættum trú okkar og þátttöku í atvinnulífinu á raunhæfan og heiðarlegan hátt. Ráðstefnan fer fram á ensku. Ekki verður túlkun.
Leiðum í trú – Byggjum með tilgangi
Föstudagskvöldið 11/9: Við byrjum með kvöldverði á föstudeginum klukkan 18. Þar mun Dennis de Graaf, varaforseti Europartners, deila sinni persónulegu sögu. Hann fjárfesti í nokkrum fyrirtækjum eftir að hafa selt upplýsingatæknifyrirtækið sitt. Hann mun segja okkur frá sinni persónulegu vegferð og áskorunum, sem frumkvöðull knúinn áfram af trú. Að því loknu gefst tími fyrir okkur hin að tjá okkur, bera upp spurningar og deila okkar eigin sögu.
Laugardagsmorgunn 12/9: Við höldum áfram klukkan 09:00. Wouter Droppers mun tala um efnið „Sjálfsmynd og köllun: Hvernig horfir þetta við kristnum frumkvöðlum og viðskiptaleiðtogum?“ Hann mun deila sögu sinni og bjóða upp á hagnýtan lærdóm. Wouter Droppers er leiðandi rödd á sviði trúar og viðskipta. Í hátt í fjóra áratugi hefur hann starfað við hlið leiðtoga í viðskiptalífinu. Hann starfaði sem forseti nokkurra fyrirtækja í bílaiðnaðinum og er nú forseti hinna kristnu samtaka, Europartners. Hann er einnig höfundur bókarinnar “The Jerusalem Entrepreneur”. Hér er hlekkur inn á vefsíðu samtakanna https://europartners.org/about-europartners/
Laugardagssíðdegi 12/9: Þetta er þinn tími. Saman skoðum við hugmyndina um viðskipti skv. forskrift guðsríkisins, þar sem Guð er eigandinn, menningin er í samræmi við gildi hans og þjónustan endurleysir og uppfyllir raunverulegar þarfir einstaklingsins og samfélagsins í heild. Við reynum að gera þetta eins hagnýtt og skiljanlegt og hægt er, til að þitt eigið fyrirtæki geti innleitt þessa þætti.
Þátttökugjaldið er 34.000 kr. og innifalið er ráðstefnan sjálf, ráðstefnugögn, kvöldverður á Grand Hotel Reykjavík á föstudeginum, hádegisverður á laugardeginum og kaffiveitingar.
Skráningarform:
Virðingarfyllst, Hafsteinn G. Einarsson, 893-9702, Lindin fjölmiðlun
Kynningin á ensku: Leading in Faith – Business Conference Iceland-PDF