Vakning

MYND-af-þremur-kertum-11-texti um að vera með og taka þátt

.

Biðjum fyrir vakningu á Íslandi

Látum ljósin loga 24/7

Tökum höndum saman og sjáum vakningu verða að veruleika á Íslandi.  Hér er áskorun til kirkna á Íslandi og allra þeirra sem eiga lifandi trú í þessu landi að gera nú það sem í okkar valdi stendur til að sýna Guði samstöðu og einingu með bænum okkar hvert fyrir öðru og fyrir þjóðinni. Við hófum sólarhringsbæn mánudaginn 7. september 2026 og þér er boðið að taka þátt. Þyrstir þig í að andleg vakning eigi sér stað í okkar samfélagi? Ertu tilbúin(n)?

Hér er krækja inn á skráningarform til að skrá þig fyrir bænatíma. Smelltu fyrst á „Create a login” efst í hægra horninu og búðu þér til aðgang.  Svo er hér kennslumyndband sem sýnir hvernig þú skráir þig inn og velur bænatíma á 24-7 Prayer.

Hér eru síðan fréttabréf síðustu mánaða þar sem fram koma áherslur í bæninni fyrir hvern mánuð í senn:

Fréttabréf – September         Fréttabréf – Október        Frettabréf – Nóvember

.                                                                                               Newsletter-NOV-English

Við ætlum að halda samfelldri bæn gangandi og ljósinu logandi. Hver kirkjan á fætur annarri kveikir sitt ljós og heldur þannig bænavaktinni gangandi.

  • Átakið hófst 7. september 2026, kl. 7 að morgni í sal Kristniboðssambandsins, Háaleitisbraut 58-60, með allsherjarbæn í eina klukkustund. Við vildum vera saman á einum stað, þegar átakið hófst.
  • Þann 7. hvers mánaðar kl. 7 munum við endurtaka þessa allsherjarbæn.
  • Þess á milli tekur hver kirkjan á fætur annarri vaktina, eftir fyrir fram ákveðnum vikudegi og stund sem hún hefur valið sér. Hver kirkja velur þann bænastað sem hentar henni. Hversu lengi hver kirkja biður fer eftir hvað hver og ein kirkja treystir sér til að standa við.

Áherslan er á að halda ljósinu logandi. Við kveikjum ljós þegar okkar vakt hefst og slökkvum það ekki aftur fyrr en næsta kirkja hefur kveikt sitt ljós og tekið við bænakeflinu. Þannig verður ljós logandi og bæn/lofgjörð í gangi allan sólarhringinn. Þetta er ómögulegt fyrir einn eða fáa en létt verk fyrir marga. Ljósið getur verið kerti, rafkerti, vasaljós, olíulampi, sjö arma ljósastika sem margir eiga sem jólaskraut eða eitthvað annað táknrænt ljós.

Markmiðið er að efla einingu meðal kristinna, hreyfa himnana og sjá vakningu brjótast út. Við biðjum fyrir kirkju Krists á Íslandi, einstökum kirkjum og kristilegu starfi, því fólki sem fer fyrir og leiðir og starfar á hverjum stað, þörfum kirknanna og áskorunum sem þær mæta. Við erum samhentur her Guðs. Hver einasti einstaklingur sem Guð á í þessu landi er útvalinn og mikilvægur í þeirri miklu vakningu sem Guð ætlar að gefa á þessu landi.

Samhliða bænakeðjunni er mikilvægt að hittast og leggja á ráðin um hvernig við ætlum að taka á móti þeim fjölda fólks sem leitar til okkar þegar vakningin fer af stað af fullum þunga. Við viljum að Guð eignist mun fleiri á Íslandi en til þess þarf einingu og samstöðu, bæn og plan sem virkar.

Dalirnir munu fyllast vatni

Í nýrri bók Ágústar Valgarðs Ólafssonar „Þessi dalur mun fyllast vatni“, er fjallað um atburðina í 2. Konungabók, 3. kafla, þegar vatnið var þrotið og Guð sagði þeim að grafa gryfju við gryfju í dalnum.

„Grafið gryfjur um allan þennan dal því að svo segir Drottinn: Þið munuð hvorki sjá vind né regn en samt skal þessi dalur fyllast af vatni svo að þið getið drukkið ásamt her ykkar og skepnum.” – 2. Kon. 3:16-17

Þetta var ráð Guðs til að vatnið sem hann ætlaði að gefa þeim myndi ekki bara fljóta framhjá heldur myndi nýtast sem best. Sama á við um okkur. Engin ein kirkja ræður við að taka við öllu því leitandi fólki sem sækir í kirkjur samhliða vakningunni. Guð þarf allar hendur á dekk. Þess vegna er mikilvægt að við vinnum sem einn maður og skipuleggjum okkur vel.

Hægt er að nálgast ókeypis eintök af bók Ágústar gegnum þessa krækju; https://everynation.is/vakning/

Sjáum vakningu eiga sér stað

Við hvetjum þig til að að leita Guðs með þátttöku þína í þessu átaki.  Ef það blundar í þér þrá að sjá vakningu í landinu okkar, þá er þér hér með boðið að taka þátt. Því fleiri bænamenn og -konur sem taka stöðu sína, því fyrr kemur uppskeran. Elskar þú fjölskyldu þína, vini og annað samtíðarfólk nógu mikið til að þrá að sjá þau komast til lifandi trúar á frelsara okkar Jesú Krist?

Ef svarið er já þá bjóðum við þér og þinni kirkju að vera hluti af þessu átaki. Hægt er að skrá sig á bænavakt gegnum krækjuna hér að neðan. Við biðjum þig að taka þátt undir hatti þinnar kirkju. Skráningin sé með þeim hætti að fyrst komi nafn kirkjunnar og síðan nafn þess einstaklings sem er ábyrgur fyrir þeim klukkutíma. Einnig væri gott að hafa farsímanúmer viðkomandi. Dæmi “Fíladelfía – Hafsteinn 893-9702”.  Farsímanúmerið er gott að hafa til þess að bænamaðurinn á undan þér geti hringt í þig og tryggt að þú takir við “bænakeflinu” og hafir kveikt á þínu bænaljósi.

Mikið væri gott ef hver kirkja tæki að sér 1 til 10 klst per viku, þar sem hún skuldbindur sig áframhaldandi til að standa vaktina í bæn og lofgjörð, eða þar til vakningin fer af stað. Þá er þín kirkja að taka sömu klukkustundirnar í hverri viku, þó þannig að einstaklingar í kirkjunni geta búið sér til skipulag sín á milli. Bænakeðjan þarf að vera samfelld og órofin og við eigum enn svolítið í land með að það náist (þegar þetta er ritað í sept. 2026). En við ætlum að halda áfram með bænakeðjuna þangað til Vakningin fer af stað. Erfitt fyrir einn eða fáa að standa undir slíku bænaátaki, en auðvelt fyrir líkama Krists á Íslandi að framkvæma í einingu.

Leiðbeiningar fyrir bænakeðjuna

  1. Bænavakt hefst með því að kveikja á táknrænu bænaljósi, t.d. kerti í kirkjunni
  1. Hringt er í þann sem er næstur á undan í bænakeðjunni og hann látinn vita að búið sé að kveikja ljós í næstu kirkju í keðjunni og hún sé tekin við bænavaktinni.
  1. Bænavaktin getur samanstaðið af bæn, lofgjörð, þakkargjörð og því að hlusta á Guð og skrifa niður það sem hann er að segja.
  1. Játum út fyrirheitin í Orði Guðs og spádóma sem hafa komið fyrir land og þjóð, þá sem við þekkjum.
  1. Bænarefnin:
    • Biðjum fyrir öllum kirkjunum í keðjunni, öllu verki Guðs á Íslandi ásamt leiðandi fólki á hverjum stað.
    • Biðjum fyrir íslensku þjóðinni, að hún iðrist, taki á móti Jesú og fylgi honum.
    • Biðjum Guð að draga alla þjóðina að Jesú, að allir mættu þekkja frelsara sinn.
    • Biðjum Guð að senda verkamenn til uppskeru sinnar.
    • Biðjum um visku, djörfung og trúfesti meðal Guðs barna, að við fáum náð til að vera samverkamenn Guðs sem reisa upp lærisveina og leiðtoga.
    • Biðjum um úthellingu Heilags anda yfir þjóðina.
    • Biðjum Guð að sýna okkur hvernig við getum undirbúið okkur fyrir vakningartíma þegar fjöldi fólks vaknar til meðvitundar um Guð og leitar inn í kirkjurnar.
  1. Við lok bænavaktar hringir þú í þann sem tekur næstu bænavakt og fullvissar þann aðila um að hann sé búin að kveikja bænaljósið og sé þannig tekinn við keflinu. Ef ekki næst í þann sem á að taka við, verður varanúmer sem hægt er að hringja í. Ekki yfirgefa staðinn þinn fyrr en fullvíst er að næsti hafi kveikt ljósið í sinni kirkju og sé tekinn við bænavaktinni. Þá er hægt að slökkva og fara.
  1. Stöndum saman sem einn maður, elskum hvert annað, tölum vel um allar kirkjur. Samgleðjumst þegar öðrum kirkjum gengur vel, uppörvum og hjálpum þegar er á brattann að sækja. Verum meðvituð um að við erum systkini og einn her fyrir Guð.

 

Kærleikskveðja frá verkefnishóp,

Guðrún Margrét Pálsdóttir, Ágúst Valgarð Ólafsson, Kolbrún B. Grétarsdóttir og Hafsteinn G. Einarsson