Fréttabréf Lindarinnar – júní
Lindin treystir á Guð … og smá aðstoð frá velunnurum
1. júní 2026
Kæri hlustandi.
Horfa þarf reglulega til eins grundvallarþáttar í starfsemi Lindarinnar en það eru fjármálin. Fyrir utan bænina og leiðsögn Guðs, þá eru fjármálin þáttur sem halda þarf vel utan um og tryggja ábyrga ráðsmennsku. Lindin sem fjölmiðlatrúboð er alfarið rekin fyrir framlög einstaklinga, kirkna og fyrirtækja. Og framlögin eru rúmlega 40 milljónir á ári, hvorki meira né minna.
Aðalfundur Lindarinnar var haldinn 27. maí sl. Þar voru lagðir fram reikningar félagsins fyrir liðið ár. Veltan árið 2025 var 41,6 mkr og gjöldin 42,0 mkr, sem gerir tap upp á 362 þkr. Tapið er ekki há tala en óskandi er að þetta ár skili afkomu réttu megin við núllið.
Laun og tengd gjöld voru 18,4 mkr og útsendingarkostnaður 13,6 mkr, en í þeirri tölu er allur kostnaður við senda Lindarinnar hringinn í kringum landið. Húsaleiga var 6,2 mkr og annar rekstrarkostnaður 3,1 mkr.
„Gefið og yður mun gefið verða. Góður mælir, troðinn, skekinn, fleytifullur mun lagður í skaut yðar.
Því með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður aftur mælt verða.“ – Lúkas 6:38
Á aðalfundinum var einnig rætt um framtíð Lindarinnar og hvert við stefnum. Mikill hugur er í stjórn Lindarinnar sem og undirrituðum, að Lindin fari í auknum mæli inn á samfélagsmiðla með fjölbreytt kristilegt efni. Lindin er nú þegar farin af stað með MTM (Miðlun-Til-Margföldunar), sem þegar hefur verið kynnt, en fjölmargar aðrar leiðir er hægt að fara.
Af þessari ástæðu biðlum við til þín kæri hlustandi, að þú styðjir okkur í þessari viðleitni. Ef þú ert ekki mánaðarlegur stuðningsaðili í dag, þá hvetjum við þig eindregið til að koma í stuðning með fasta mánaðarlega upphæð, eða að hækka þinn núverandi stuðning. Draumur okkar er að ráða nýjan starfsmann í hlutastarf við að framleiða vandað efni á íslensku fyrir samfélagsmiðlana.
Svo var annað spennandi atriði rætt á aðalfundinum. Áhugasömum aðilum býðst nefnilega að nýta sér aðstöðuna á Lindinni. Við erum með hljóðver og uppstökustúdíó þar sem hægt er að gera hlaðvörp, lesa inn kristilegt efni og taka upp viðtöl og vitnisburði. Á Lindinni er fólk sem getur kennt og leiðbeint áhugasömum með fyrstu skrefin. Ef það blundar í þér áhugi á að framleiða uppbyggilegt efni, hafðu þá samband við okkur.
Við köllum þig til samstarfs, kæri hlustandi. Við eigum Lindina saman og saman skulum við fylgja Lindinni inn í nýja tíma.
Sumarkveðja,
Hafsteinn G. Einarsson, útvarpsstjóri