Boðskapur dagsins │ 22. september 2026 │ Aðalsteinn M Þorsteinsson
Góðan dag. Þú ert að hlusta á Lindina. Ég heiti Aðalsteinn Már Þorsteinsson og er í forsvari fyrir Lífsmótun sem m.a. gefur út Lykilorð. Ég færi þér boðskap dagsins í dag norðan úr Þingeyjarsveit og ætla að byrja hann á því að leggja fyrir þig spurningu.
Einn er sá sjú
kdómur sem hrjáir mannkyn sem hefðbundin læknisfræði eiga engin svör við. Menn eru þó mishrjáðir af þessum sjúkdóm en því miður er alltof mörgum heldur óljóst hvort þau séu alvarlega haldin honum eða hversu alvarlegar afleiðingar það hefur á líf þeirra. Þá er það almennt nokkuð útbreiddur misskilningur að lítið geri til að sína af og til væg einkenni þessa lúmskufulla sjúkdóms.
Því spyr ég þig hlustandi góður og bið þig að skoða vel hug þinn og íhuga vandlega svar þitt: Hversu öfundsjúkur ertu? Sennilega ekki mörg sem fást til þess að viðurkenna það. Einhver hafa þó kannski undir einhverjum kringumstæðum látið það út úr sér að þau væru hálf eða hálfpartinn öfundsjúk en því var þó sennilega þá látinn fylgja nokkur undirtónn. Ætlað að gefa til kynna að yfirlýsingunni beri nú ekki að taka alltof hátíðlega. Í framhaldinu finnst mér eðlilegt að velta því upp hvort vera kunni að almennt sé það viðhorf flestra að smá öfund sé nú ekki til að hafa áhyggjur af, hún sé fullkomlega eðlileg eða jafnvel óhjákvæmilegur fylgikvilli í samfélagi manna. Hver veit nema einhverjir líti jafnvel jákvæðum augum til öfundarinnar. Hún getur jú verið þónokkur drifkraftur til athafna. En öfundin leiðir sjaldnast ef nokkurn tímann til góðra verka. Við þurfum ekki að leita lengi í Biblíunni til þess að sjá merki um hið gagnstæða. Kain drap Abel því hann öfundaði hann. Bræður Jósefs seldu hann í þrældóm því þeir öfunduðu hann. Sál lagði fæð á og reyndi að drepa Davíð því hann leit hann öfundaraugum. Æðstu prestarnir og farísearnir framseldu Jesú í hendur Pílatusi því að þeir öfunduðu hann.
Öfund er dauðans alvara og því full ástæða til þess að skoða nú huga sinn og hjarta vel. Hvað er það eða hverjir sem ég hef eða er að öfundast út í? Um leið segir það okkur líka hvað það er sem við teljum eftirsóknarvert. Hið títnefnda lífsgæðakapphlaup á sjálfsagt uppruna sinn í öfundinni. Prédikarinn segir í 4. kafla, versi 4: Ég sá að allt strit og öll elja er ekki annað en öfund eins manns við annan. Einnig það er hégómi og eftisókn eftir vindi. Höfundur Orðskviðanna gengur svo langt að segja að öfundin sé eitur í beinum líkamans (Orðskv 14.30). Að vísu er þó á öðrum stað mælt með því að öfunda guðhrædda menn ævinlega. Þar er þó varla verið að mæla með þeirri sömu öfund og kveiknaði hjá Símoni töframanni í Samaríu þegar hann sá öll miklu táknin og kraftaverkin sem Filippus gjörði í Jesú nafni. Hann bauð Pétri og Jóhannesi fé fyrir ef bara mættu menn öðlast heilagan anda fyrir hans handayfirlagnir líkt og þeirra. Þið getið lesið frásögnina af Símoni töframanni sem þóttist vera næsta mikill og vakti hrifningu fólks í 8. kafla Postulasögunnar.
Í upphafi 40. kafla Síraksbókar er fjallar um örlög manna telur höfundur upp fáein atriði sem hrjá alla menn, jafnt ríka sem fátæka og er öfundin þar á meðal (5. vers) svo þannig liggur það fyrir að við erum í raun öll öfundsjúk, þó ekkert okkar vilji helst kannast við það. – En við eigum líka að leita lækningarinnar. Í niðurlagi á 5. kafla Galatabréfsins er vel þekkt upptalning á holdsins verkum og þar má finna öfundina. Sem betur fer er til lækning sem felst í því að fylgja Jesú Kristi og lifa í andanum, láta leiðast af heilögum anda Guðs svo ávextir andans spretti fram. Vert er að veita athygli að þó svo að bent sé á þá lausn að krossfesta holdið og lifa í andanum sér höfundur bréfsins ástæðu til að hnykkja aðeins á þessu með öfundina í lokin og segir í síðasta versi kaflans: Verum ekki hégómagjörn svo að við áreitum og öfundum hvert annað.
Í 7. kafla Markúsarguðspjalls versum 20-23 er Jesús að útskýra fyrir lærisveinum sínum og telja upp það sem kemur innan úr hjarta mannsins og saurgar hann – öfundin er þar á meðal. Svo ef þú eða ég höfum leyft okkur að líta á öfund sem saklausan hlut þá ættum við e.t.v. að endurskoða þá afstöðu okkar. Hversu oft hefur ekki einmitt öfund verið rót vandans þegar upp koma deilur og átök milli manna?
Páll hefur m.a. áhyggjur og ritar söfnuðinum í Korintu í síðara bréfi sínu 12. kafla: „Þegar ég kem er ég hræddur um að mér muni þykja þið öðruvísi en ég óska og að ykkur muni þykja ég öðruvísi en þið óskið. Ég er hræddur um að þið kunnið að eiga í deilum og að öfund, reiði og eigingirni ríki meðal ykkar og menn móðgi og rægi hverjir aðra og séu hrokafullir og fullir ofstopa.“ Pétur beinir því líka til allra í upphafi 2. kafla fyrra bréfs síns þar sem hann notar samlíkinguna við mjólk: „Segið því skilið við alla vonsku og alla pretti, hræsni, öfund og allt baktal. Sækist eins og nýfædd börn eftir hinni andlegu, ómenguðu mjólk til þess að þið af henni getið dafnað til hjálpræðis“ Og líka Jakob í upphafi 4. kaflans í sínu bréfi: „Af hverju koma stríð og af hverju sennur meðal ykkar? Af hverju öðru en girndum ykkar sem heyja stríð í limum ykkar? Þið girnist og fáið ekki, þið drepið og öfundið og getið þó ekki öðlast. Þið berjist og stríðið. Þið eigið ekki af því að þið biðjið ekki. Þið biðjið og öðlist ekki af því að þið biðjið illa, þið viljið sóa því í munaði.“ Ert þú að óska þér einhvers munaðar? Öfundar þú náunga þinn af einhverju sem hann má, á, kann eða getur? Guð svarar ekki bæn sem sprottin er af rótum öfundar.
Svo kæri hlustandi. Ef þú ert öfundsjúkur skaltu leita til þess eina er á lækningu. Ákalla nafn Drottins Jesú að hann fylli hjarta þitt heilögum anda svo líf þitt beri góðan ávöxt og þú verðir heill, laus undan þessum skæða sjúkdóm sem hrjáir heiminn eins og segir í Síraksbók 40. kafla 5. versi: „Alla hrjáir reiði, öfund, áhyggja og órói, ótti við dauðann, biturð og deilur.“ Ekkert af þessu þarf að hrjá þann sem tekur við Jesú Kristi. Nýtt líf í honum veitir lækning og lausn.
Biðjum:
Algóði Guð ef það leynist öfund í mínu hjarta þá opna augu mín svo ég fái séð og læknast. Stýr jafnframt hug minni og hönd svo ekkert í fari mínu ali á öfund annarra. Kenn mér að vera hógvær og af hjarta lítillátur. Í Jesú nafni. Amen.