Boðskapur dagsins │ 27. október 2026 │ Aðalsteinn M Þorsteinsson

Góðan dag. Ég heiti Aðalsteinn Már Þorsteinsson og er í forsvari fyrir Lífsmótun sem m.a. gefur út Lykilorð.
Ég flyt þér boðskap dagsins norðan úr Þingeyjarsveit. Það verður ekki ofsögum sagt að samskipti mannfólks eru margsnúin og flókin.
Iðulega koma því fram ágreiningsefni sem geta leitt til ósættis eða þaðan af verra. Í velflestum hópum fólks verða oft til eins og pandórubox, málefni sem ekki eru rædd, atriði sem ekki er tekið á, augljósir brestir sem enginn þó þorir að nefna af ótta við þann storm sem því kynni að fylgja með ófyrirséðum, hugsanlega óafturkræfum, afleiðingum, sem það hefði á annars hið friðsæla jafnvægi sem við erum velflest ætíð að reyna að viðhalda. Og þó stundum megi satt kyrrt liggja þá höfum við nú velflest ef ekki öll einhvern tímann staðið frammi fyrir því að geta nú ekki lengur orða bundist.
Löngun okkar til þess að sitja nú á okkur veldur því jafnvel að þegar við loks látum verða að því að segja upphátt hið óhjákvæmilega þá er líkt og flóðgátt bresti, frá okkur streyma yfirlýsingar og jafnvel sleggjudómar eða hrútskýringar svo atferli okkar og æðibunugangur hleypir öllu í bál og brand.
Þó svona geti stundum farið þá væri það ólíkt mér að ætla að fara draga kjark úr nokkrum manni til þess að segja hug sinn upphátt. Ég er alla daga talsmaður þess að hafa hlutina upp á borðinu. Fátt fer eins mikið í mínar allra fínstu taugar, þó þær eigi sem slíkar kannski ekki erindi í svona boðskap, eins og þegjandi fýlustjórnun. Þegar einstaklingur beitir eitrandi ólund sinni til þess að fá alla hluti eftir sínu höfði – sem þó enginn veit hvernig er því aldrei er hægt að ræða hlutina.
Enginn þorir að segja nokkuð sem virkjað gæti hina langræknu þegjandi ólund. Öll tipla á tánum en einmitt það veldur því að fýlustjórnunin virkar og henni því viðhaldið. Þetta er auðvitað bara eitt dæmi af fjölmörgum öðrum kúgunarleiðum sem farnar eru í okkar, eins og áður sagði, margsnúnu og flóknu mannlegu samskiptum. Þær eru fleiri en svo birtingarmyndir ofríkisins og kúgunarburða að þeim verði gerðar skil í stuttu máli.
En á sama tíma og hið synduga eðli mannsins eitrar með ýmsum hætti hegðun og samskipti hefur Guð og lagt í brjóstu okkar sterka réttlætiskennd sem fær jafnvel guðlausan mann án trúar á þann sem þó skóp hann til að rísa gegn óréttlæti og kúgun, a.m.k. ef hann upplifir sig eða sína nánustu verða fyrir því. Það verður vissulega oft heldur annkannalegt réttlæti þegar ekki er byggt á traustum siðferðisgrunni og hugmyndir heimsins um réttlæti og gott siðferði sveiflast líkt og pendúll með tíðarandanum.
Hið sama á reyndar að hluta til við um siðferði kirkjunnar og kristinna manna, það sveiflast aðeins með heiminum, þunglamalega þó líkt og kólfur í stórri kirkjuklukku. Ef til vill er það óhjákvæmilegt að túlkun kristinna manna á boðskap Biblíunnar reyni að brúa bilið milli þeirrar fullkomnunar sem Guð þráir að sjá í okkur og þessa tíðaranda sem mennirnir lifa í hverju sinni í viðleitni sinni til að reynast góðar manneskjur. Því flest er nú mannfólkið að fálma eitthvað í þá átt, svona oftast nær alla vega.
Við getum auðvitað fundið þá einstaklinga sem eru hér á öðru máli og sjá veröldina meira í svart hvítu en kannast lítt við gráa tóna. Það, að við skulum einmitt ekki öll sjá hlutina í sama ljósi, er nú bara enn einn þátturinn sem gerir okkar mannlegu samskipti krefjandi.Að eitthvað sé flókið, snúið, erfitt eða krefjandi getur og gert það áhugavert. Við viljum takast á við áskoranir því öll höfum við einhvern tímann upplifað á lífsleiðinni þá sælutilfinningu sem því fylgir þegar okkur tekst að sigrast á einhverju, ná settu marki, sjá árangur erfiðisins. En hlutirnir geta líka orðið yfirþyrmandi, okkur fallist hendur, við misst móðinn eða okkur skort kjark til að taka áskoruninni. Og þar erum við öll einhvers staðar með okkar mannlegu samskipti.
Við tæklum sum ágætlega en önnur síður. Það hvernig við berum á borð ágreiningsefni og höldum áfram saman þrátt fyrir að við séum ekki endilega sammála um alla hluti virðist vera lítt kunn þekking. Það er svo sem ekkert nýtt á nálinni. Við þurfum ekki að leita lengi í bréfum Nýja testamentisins til þess að finna skrif sem sprottin eru af þörf fyrir að leysa úr ágreiningsefnum eða ósætti. Þar sem minna þarf á skyldu okkar til þess að víkja ekki af vegi Jesú Krists, vegi sannleikans og hjartans auðmýktar yfir á veg eigin metorða, sérfylgni og miskunnarleysis.Vissulega er oft þörf til þess að taka á erfiðum málum, segja upphátt og orða það sem betur má fara. Við þurfum, og ber í raun skylda til, að rísa upp gegn öllu ofríki og allri kúgun hvar sem hún kemur fram og hvernig svo sem hún birtist.
En við verðum að gera það af mildi og virðingu við náungan í kærleika. Í raun má líka segja að við séum í skuld við náunga okkar ef við látum það ógert að ganga í óþægilegu málin af þeirri sök einni að við viljum ekki raska okkar eigin ró, best sé að vera ekki að rugga bátnum. Svo þó að samskipti okkar við annað fólk geti verið okkur á stundum umtalsverð áskorun sem mann helst langar að hlaupa frá, sleppa við eða gefast upp á þá ber okkur að takast á við þær áskoranir. Margt í köflum 12. – 15. í Rómverjabréfinu kemur inn á þetta efni en yfirskrift 12. kaflans er einmitt: Sönn og rétt guðsdýrkun og mér finnst reyndar alls ekki úr vegi að halda því í rauninni fram að framferði okkar í öllum mannlegum samskiptum og viðleitni okkar til þess að gera vel og greiða úr öllum málum sé órjúfanlegur þáttur í því að heiðra Guð. Skuldið ekki neinum neitt nema það eitt að elska hvert annað því að sá sem elskar náunga sinn hefur uppfyllt lögmálið. segir í 8. versi 13. kafla og jafnframt í framhaldi af því í 10. versi: Kærleikurinn gerir ekki náunganum mein. Þess vegna er kærleikurinn uppfylling lögmálsins.
Í 12. kaflanum segir líka í versum 9-10: Elskan sé flærðarlaus. Hafiðandstyggð á hinu vonda en haldið fast við hið góða. Verið ástúðleg hvert við annað í bróðurlegum kærleika og keppist um að sýna hvert öðru virðingu. Litla virðingu eigum við sjálf reyndar skilið ef við fyrst og fremst líkt og allir hinir eða einvörðungu berjumst fyrir því að leiðrétta óréttlæti sem við sjálf verðum fyrir. Fremur ber okkur að huga að hag annarra og jafnvel gefa okkar eigin eftir ef það má verða öðrum til góðs.
Takið á móti trúarveikum án þess að dæma skoðanir þeirra eru upphafsorð 14. kaflans og 15. kafli hefst á svipuðum nótum: Skylt er okkur, hinum styrku, að bera veikleikann með hinum óstyrku og hugsa ekki aðeins um okkur sjálf. Sérhvert okkar hugsi um náunga sinn, það sem honum er til góðs og til uppbyggingar. Kæri hlustandi. Ég hef vonandi vakið þig til umhugsunar og hvatt þig til þess að eiga í samskiptum við annað fólk, líka þar sem þarf að taka á erfiðari málum svo hægt sé að finna leiðina áfram. En áður en eitthvert ykkar stekkur af stað og stofnar til illdeilna vil ég þó enda á versum úr áðurnefndum köflum Rómverjabréfsins. Það eru 18. og 21. versið úr 12. kaflanum: Hafið frið við alla menn að því leyti sem það er unnt og á ykkar valdi. … Lát ekki hið illa sigra þig en sigra þú illt með góðu.
Ég bið:
Góði Guð vertu með okkur í samskiptum okkar við annað fólk.
Gefðu okkur áræðni til þess að eiga í samskiptum, visku til að koma
auga á ofríki og kærleika til þess að takast á við það af festu og mildi.
Hjálpaðu okkur að byggja upp samskipti svo það megi færa mönnum
blessun og gleði og þér, skapara okkar og lausnara, dýrð og vegsemd.
Í Jesú nafni. Amen.