Námskeið um trúarskynjun verður haldið helgina 6. – 7. febrúar 2026, í Grensáskirkju
Við skynjum Guð og fáum tilfinningu fyrir áhrifum hans með mismunandi hætti. Fyrir sumum eru rök trúarinnar afgerandi en fyrir öðrum geta það verið tilfinningalegri þættir, eins og tónlist eða fegurð náttúrunnar sem fremur hrífa fólk þannig að það laðist að Guði og því sem hans er. Trúarskynjun er hægt að mæla með könnun sem mögulegt er að taka á íslensku í gegnum netið.
Hvaða gagn er að könnun á trúarskynjun?
Þekking á trúarskynjun sýnir hvernig við meðtökum best trúarlegan veruleika og auðveldar trúarlega uppbyggingu. Auk þess vex skilningur á milli fólks þegar við áttum okkur á því að annað fólk skynjar Guð fremur eftir öðrum farvegum en við. Hér er ekki verið að tala um trúarkenningar. Fólk með ólíkar trúarskynjanir getur haft sömu trúarskoðanir. Fyrir þá sem boða trúna eða fræða um hana getur verið mikilvægt að þekkja til margvíslegra trúarskynjana, sem líkja má við trúartungumál. Trúarskynjunin er þá sá tjáskiptamáti sem er nærtækastur hverjum og einum í andlegum efnum.
Upplýsingar og skráning
Upplýsingar eru á fésbókarsíðunni “NSU-Náttúruleg safnaðaruppbygging”. Einnig hjá Vigfúsi Ingvari Ingvarssyni: vigfus50@gmail.com, sími 863 6866. Hann sér einnig um innritun.
VERÐ: Með bókinni Áhrifaríkt trúarlíf, er verðið 17.000 kr. en 15.000 kr. án bókar. Hjón greiða 25.000 kr., án bókar. Millifærið á reikning: 0305-26- 9121, kt. 180150 4639.
Dagskrá námskeiðsins
Námskeiðið hefst kl. 20:00 að kvöldi föstudagsins 6. febrúar. Viðfangsefnið verður kynnt og bókin, Áhrifaríkt trúarlíf – Trúarskynjun mín, þín og safnaðarins, afhent (þeim sem ekki eiga hana) og netkönnunin tekin. Tímanum verður einnig varið til söngs, lofgjörðar og hugleiðingar.
Námskeiðinu verður svo fram haldið frá kl. 10:00 á laugardaginn og reiknað með að því ljúki um kl. 17:00. Þarna verður meiri kennsla um trúarskynjanir og efnið rætt í hópum og pallborðsumræðum.
Næring á námskeiðinu
Einfaldur hádegisverður á laugardaginn er innifalinn og sömuleiðis verður heitt á könnunni á föstudagskvöldinu, laugardagsmorgni og síðdegis þann dag og væntanlega eitthvert brauðmeti tiltækt – það andlega verður þó í fyrirrúmi.
Samtök náttúrulegrar safnaðaruppbyggingar á Íslandi standa að þessu námskeiði með góðri aðstoð Margret Saue Marti, fyrrum formanns samtakanna. Lengi beindist athyglin eingöngu að söfnuðum en á síðari árum hafa verið þróaðar kannanir fyrir einstaklinga enda er söfnuður hópur einstaklinga.
Hvað er Náttúruleg safnaðaruppbygging?
Um er um að ræða vinnulag – sem er lítt háð kirkjudeildum eða menningu – fremur en forskrift að safnaðarstarfi. Víðtækar rannsóknir liggja að baki starfseminni. Ekkert bákn er þó yfir þessari hreyfingu. Ræturnar eru í Þýskalandi seint á síðustu öld. Í forustu er guðfræðingurinn Christian A. Schwarz en fjölda bóka er að finna eftir hann á tugum tungumála. Hægri hönd hans í rannsóknarstarfseminni hefur verið félagsvísindamaðurinn og sálfræðingurinn Christoph Schalk. Þrátt fyrir áherslu á rannsóknir og prófanir er varað við tæknihyggju en fremur horft til fyrirmynda í lífríkinu og biblíulegrar áherslu á að vöxtur guðsríkis meðal manna lúti svipuðum lögmálum og náttúrulegur vöxtur sbr. margar líkingar Jesú um sáðkorn, akra og tré. Áhersla er á heilbrigði safnaða og gæði starfsins fremur en tölulegan vöxt. En rétt eins og heilbrigð lífvera vex og dafnar þá er hliðstæðrar framvindu að vænta hjá söfnuði. Guð gefur vöxtinn, rétt eins og við erum minnt á í líkingunni um bóndann sem vakir og sefur á meðan kornið dafnar á akrinum (Mrk 4.26-29). Við getum aðeins fjarlægt það sem hindrar vöxt og þroska.
Könnun og gæðamörk
Í söfnuðum eru gerðar kannanir sem sýna stöðu svokallaðra gæðamarka og leiðbeint er um túlkun þeirra og áhrif. Þau eru:
- Eflandi forysta, 2. þjónusta sem tekur mið af náðargjöfunum, 3. áhrifaríkt trúarlíf, 4. virkt skipulag, 5. guðsþjónustur sem veita innblástur, 6. nærhópar (smáhópar, tengdir daglegu lífi þátttakenda), 7. Boðun í ljósi þarfa fólks og 8. kærleiksrík samskipti.
Nánari upplýsingar um náttúrulega safnaðaruppbyggingu má fá í bókinni: Náttúruleg safnaðaruppbygging: átta grunnþættir kröftugrar kirkju, eftir Christian Schwarz – sem þó fylgir ekki algerlega nýjustu þróun (á íslensku, 2002). Yngri er bæklingurinn: Grunnatriði náttúrulegrar safnaðaruppbyggingar – Söfnuðurinn sem lærisveinar (Margaret Saue Marti, 2012). Þá skal bent á greinar í Bjarma sem flestar má einnig finna á timarit.is:
Náttúruleg safnaðaruppbygging, 4:2012
Af náttúrulegri safnaðaruppbyggingu, 2:2016
Ný bók um safnaðaruppbyggingu, 1:2017
Litirnir í líkingu náttúrulegra safnaðaruppbyggingar, 2:2017
Náttúruleg safnaðaruppbygging í þjóðkirkjunni á tímamótum, 3:2018
Hvernig skynjum við Guð? 2:2024.
Í Kirkjuritinu árið 2022 er að finna greinina: Náttúruleg safnaðaruppbygging.
Margvíslegt efni er svo á erlendum vefsíðum svo sem ncd.life/is/character (á íslensku um persónulegar kannanir) og ncdchurchsurvey.org.
Um tiltekið gæðamark er bók Schwarz: Þrír litir þjónustunnar: Að uppgötva og nýta náðargjafir (Skálholtsútgáfan og NSU, 2017) – og um fleiri gæðamörk er að finna bækur á mörgum erlendum tungumálum.
Nýjasta bókin – um annað gæðamark – er: Áhrifamikið trúarlíf – Trúarskynjun mín, þín og safnaðarins, e. Kjetil Sigerseth, Salt ehf. 2024.