Skip to content

Lindin

Lifandi útvarp

Banner-foss-2
Primary Menu
  • Heim
  • Um Lindina
    • About Lindin
    • Hugsjón
    • Frelsisbænin
    • Saga Lindarinnar
    • Sagan í ártölum
    • Salur til leigu
    • Myndband: Tónlist og trúboð í 10 ár
    • Starfsfólk
    • Stjórn Lindarinnar
    • Lausanne sáttmálinn
    • Bréf til þín
    • Viltu hjálpa til?
    • Já, ég vil hjálpa til
    • Ertu lærisveinn?
    • Friðhelgisstefna
    • Vitnisburðir
  • Dagskrá
    • Vikudagskráin
    • Lindin „í beinni“
    • Boðskapur dagsins
      • Jesús, Jónas og Dómaldi
      • Í þörf fyrir náð Guðs
      • Vitnisburðir í Biblíunni
    • Uppáhalds lögin mín
    • FM tíðnikort
    • Brandarar
  • Bænir
  • Appið
    • Sækja Lindar appið
    • Hlusta á þætti
    • Stakir þættir
    • Spilari Lindarinnar
  • Á döfinni
    • Vakning
      • Fréttabréf – nóvember
      • Fréttabréf – Október
      • Fréttabréf – september
    • Viðskiptaráðstefna
    • Dagsferð aftur á landnámsöld
    • Alþjóðleg bænavika
    • Alþjóðlegi trúboðsdagurinn
    • Bænaganga á sumardaginn fyrsta
    • Alfa námskeið
  • Hljóð og mynd
    • Upptökur og hljóðvinnsla
    • Frelsari allra tíma
  • Stuðningur
    • Nýr stuðningsaðili
    • Skrá greiðslukort
    • Skattaafsláttur
    • Gjöf á móti gjöf
    • Hvað hefur Lindin gert fyrir þig?
    • Bankareikningar / Financial support
  • Gjöf-á-gjöf
  • Home
  • 2026
  • August
  • 26
  • Boðskapur dagsins
Lindin kristið útvarp 26/08/2026

 

 

 

Undirrót allra lasta ágirndin kölluð er.

Kæri hlustandi Lindarinnar. Ég heiti Aðalsteinn Már Þorsteinsson, bý norður í Þingeyjarsveit, er í forsvari fyrir sjálfseignarstofnunina Lífsmótun, sem m.a. gefur árlega út Lykilorð og færi þér boðskap dagsins.

Öllum ætti að vera kunnugt um Passíusálma Hallgríms Péturssonar þó svo að sjálft innihaldið þekki fólk misvel. Sum erindi eru þó það vel þekkt að margir geta farið með eða allavega sungið þau utanbókar, líkt og t.d Son Guðs ertu með sanni eða Þurfamaður ert þú mín sál, þó kannski ekki allir geri sér grein fyrir hvaðan textinn kemur. Mörgum kann líka að finnast málið fornt og því erfitt að skilja sálmana en er það ekki bara auðgandi og þroskar mann að takast á við þyngra stöff og flóknara orðaval en okkar daglega talmál.

Síðustu daga hefur leitað á huga minn fyrsta málsgreinin úr 8. erindi 16. Passíusálms Hallgríms. „Undirrót allra lasta ágirndin kölluð er.“ Þessi staðhæfing Hallgríms kallast t.d. á við skrif Páls til Tímóteusar þar sem hann skrifar í fyrra bréfinu, 6. kafla, 10. vers: „Fégirndin er rót alls ills.“ Almennt mun sjálfsagt meðal okkar, sem hluti þeirrar menningar sem við tilheyrum, vera litið svo á að það að vera gráðugur eða sýna af sér græðgi sé nokkur löstur. Þannig kannst sjálfsagt einhverjir við orðatiltækið: „Græðgin er alveg að drep‘ ann!“ Þetta á þó fyrst og fremst við um svona stjórnlausa og öllum augljósa græðgi, það sem engum dylst. Langstærstur hluti mannsins girnda fer þó huldu höfði, er slægvitur. Jafnvel svo að okkur er stundum sjálfum ekki ljóst hver sá kraftur er sem rekur okkur áfram eða hvaða hvatir liggja að baki ásælni okkar eða sterkra þarfa til sumra hluta. Ágirnd eða græðgi er mjög stór drifkraftur íslensks samfélags sem og í raun alls mannkyns, með ólíku hætti þó í mismunandi menningarheimum. Ég ætla að leyfa mér að ganga svo langt að halda því fram að í grunninn sé það ágirndin sem veldur hárri verðbólgu, hækkandi stýrivöxtum og miklum verðbólguvæntingum á Íslandi. Allir vilja alltaf meira, óttast að fá ekki nóg og telja víst að meiri auður gefi af sér öruggara og betra líf. Eða heyrum við oft og víða í samfélagi okkar talað um nægjusemi? Frekar heyrum við hrópað meira, meira, meira! úr öllum áttum. Allir virðast óttast mest að ganga með skertan hlut frá borði, hver og einn reynir að tryggja sér stærri sneið af kökunni og fæstum ef nokkrum finnst hann eða hún fá nóg. Eina leiðin til þess að vinna á þessari græðgisvæðingu alls er almenn hugarfarsbreyting meðal Íslendinga. Varla dylst nokkrum manni hver afstaða og boðskapur Jesú Krists er til þessarar miklu áherslu mannsins á efnisleg gæði og veraldlegan auð. Jafnvel merking hinnar furðulegu myndlíkingar að troða úlfalda gegnum nálarauga er augljós í fullu samhengi við það sem Kristur og kristni stendur fyrir. Það er því umtalsverð áskorun að viðhalda nægjusemi í fylgd með Jesú Kristi í samfélagi sem er jafn gegnumsýrt af græðgi og ágirnd líkt og samtími okkar er. Því miður erum við mörg hver alveg grandlaus og ómeðvituð um það hversu ríkur drifkraftur í lífi okkar ágirndin er. Hjá sumum okkar jafnvel stærri og sterkari en trúin á Guð og fylgd við frelsarann Jesú Krist. Um leið og tilfinningin fyrir því að vera að græða á því að trúa dofnar hverfur allur áhugi og trúræknin stenst ekki þá prófraun þar um hvort hún stóð á einlægni hjartans sannfæringu frekar en eigin ágirnd um að tryggja sér sjálfum sífellt alltaf bara betra og meira í óseiðandi löngun sem aldrei verður í rauninni slökkt. Sá eða sú sem snýr sér til Jesú á örlagatímum af því að á því er eitthvað að græða mun henda þeirri hækju frá sér þegar hennar gerist ekki lengur þörf og leita annað, verja tíma sínum og kröftum þar sem hann eða hún telur sig fá meira grætt. Eins er því farið með þátttöku sumra í samfélagi með öðrum trúuðum. Mætt er á samkomur eða í messu svo lengi sem viðkomandi finnst eitthvað á því að græða og þátttakan snýst síður um það að heiðra Guð og deila trú sinni með öðrum en meira um það að fá eitthvað fyrir sig. Ávinningur af hvers kyns brölti er mældur í eigin tilfinningum sem allar skulu miða að vellíðan og markmiðið virðist vera að uppfylla eigin félagslegar þarfir frekar en að leita Guðs, heiðra hann og vaxa í trú.

Heimurinn snýst allur um það að græða, allir eru að safna sér auð af einhverju tagi og sumir með svo ærnum tilkostnaði að þeir fórna jafnvel því sem öllu skiptir, trúnni. Sé þannig komið fyrir mér eða þér er óhætt að segja að við séum alveg að drepast úr græðgi.

  1. Passíusálmur Hallgríms fjallar um iðrun Júdasar sem fékk þó engu áorkað í að vinda ofan af afleiðingunum sem urðu af svikum hans, ástsælni hans í silfrið. Sálmurinn er um leið áminning til okkar allra og aðvörunarorð að láta ekki glepjast eða halda að hægt sé að kaupa allt gott aftur, sumt fæst aldrei bætt.

Undirrót allra lasta
ágirndin kölluð er.
Frómleika frá sér kasta
fjárplógsmenn ágjarnir,
sem freklega elska féð,
auði með okri safna,
andlegri blessun hafna,
en setja sál í veð.

þannig orti Hallgrímur. Í hans huga voru engin meiri auðæfi til en andleg blessun okkar himneska föður. Öll heimsins auðæfi eru hverful og í raun til einskis nýt þegar kemur að því að greiða það eina gjald í lífinu sem öllu skiptir að eiga fyrir. Í þeim efnum kemur að engu gagni þótt menn raki saman að sér fénu og eignist sífellt meira. Sá sem vill í raun og veru græða og eignast raunveruleg auðævi fer aðra leið og Páll bendir Tímóteusi á þetta í textanum sem ég kom lítillega inn á í upphafi úr 6. kafla fyrra Tímóteusarbréfs:

Trúin samfara nægjusemi er mikill gróðavegur. En þeir sem ríkir vilja verða falla í freistni og lenda í snöru alls kyns óvitulegra og skaðlegra fýsna er sökkva mönnum niður í tortímingu og glötun. Fégirndin er rót alls ills. Við þá fíkn hafa nokkrir villst frá trúnni og valdið sjálfum sér mörgum harmkvælum.          (1.Tím 6.6-10)

Í dag vil ég hvetja okkur öll, mig og þig, til þess að skoða hug okkar og hjarta hvort ágirndin fái einhvers staðar rými í daglegu lífi, hvort græðgi sé á einhvern hátt drifkraftur að baki orða okkar og/eða athafna? Gætum við e.t.v. tileinkað okkur meiri nægjusemi og markvisst þjálfað okkur í því að standa gegn þeim sterku græðgisöflum sem drífa samfélagið áfram og æða um allt líkt og stjórnlaus eldur sem skilur eftir sig eyðileggingu, sviðna jörð. Það sést kannski ekki á morgun í mælingu verðbólguvæntinga þó svo að ég og þú stígi skref í átt að meiri nægjusemi en ef við fetum áfram þá braut dag eftir dag og leggjum sífellt meiri áherslu á að leita andlegra auðæfa frekar en að sogast með í neyslufyllerí óseðjandi kaupóðra Íslendinga þá mun það ekki einvörðungu skila sér í okkar eigin sálarheill heldur og laða fleiri á veginn með Jesú Kristi.

„Guð minn mun uppfylla allar ykkar þarfir og láta Krist Jeús veita ykkur af dýrlegum auðæfum sínum.“ segir í Filippíbréfinu 4.19 Og þannig er að hver sá sem leggur traust sitt og trú á frelsarann Jesú Krist eignast að sönnu þau verðmæti sem leysa úr allri skuldaánauð og þrældómi sem þörfin fyrir að eiga og safna veraldlegum auðæfum leggur á mann. Mörg sem eru að bugast undir þeirri ánauð sem ágirndin leggur á þau myndu koma fagnandi í faðm frelsarans ef þau sæu hversu mikill gróðavegur trúin samfara nægjuseminni er. Hvar sjá þau það? Hver er að sýna þeim það?

 

Aðalsteinn Már Þorsteinsson.

About The Author

Lindin kristið útvarp

See author's posts

Post navigation

Previous: Karen og kaffibollinn
Next: Öfund. Eitur í beinum.

Related Stories

Flókin mannleg samskipti
  • Boðskapur dagsins

Flókin mannleg samskipti.

Lindin kristið útvarp 04/11/2026
Öfund
  • Boðskapur dagsins

Öfund. Eitur í beinum.

Lindin kristið útvarp 22/09/2026
ChatGPT Image Apr 20, 2026, 10_17_29 PM
  • Boðskapur dagsins
  • Frétt

Þakkarskuld

Lindin kristið útvarp 21/04/2026
Lindin, kristið útvarp  |  Krókhálsi 4  |  110 Reykjavík  | Landsbankinn  0130-26-126868,  kt.  691194-2729 |  Sími 567-1818  |  www.lindin.is  |  lindin@lindin.is

Lindin

Lindin, kristið útvarp │ Krókhálsi 4 │ 110 Reykjavík │ kt. 691194-2729 │ Banki 0130-26-126868 │ S: 567-1818 │ lindin@lindin.is

Drottinn blessi þig, kæri hlustandi. | MoreNews by AF themes.