Lindin stóð fyrir sumarferð út í Ingólfshöfða laugardaginn 6. júní.
Við vorum 22 talsins. Lögðum af stað úr bænum í grenjandi rigningu en þegar við komum í Hofsnes og vorum að undirbúa okkur undir ferðina út í Höfðann, þá stytti upp og við tók bjart og fagurt veður, allan tímann sem við vorum í göngutúrnum. Guð svaraði bænum okkar um betra veður. Við heyrðum söguna um okkar fyrsta landnámsmann, Ingólf Arnarson og hvernig landslagið við Höfðann hefur að öllum líkindum litið út þarna fyrir rúmlega þúsund árum. Heilsuðum líka upp á nokkra lunda og skúma og settumst inn í björgunarskýli Landsbjargar, sem er elsta skýli landsins af sinni tegund. Þreyttir en glaðir ferðalangar komu til baka til Reykjavíkur klukkan 23 um kvöldið.
Við þökkum Hafliða fyrir fræðandi og skemmtilega leiðsögn á leiðinni, Möttu og Einari fyrir að bjóða okkur og fyrir leiðsögnina í Höfðanum, Baldri bílstjóra hjá Kynnisferðum fyrir óaðfinnanlegan akstur og einnig öllum þeim sem tóku þátt í þessum skemmtilega degi.
Kveðja, Hafsteinn