Þannig er að eldri mann, 76 ára að aldri og dvelur á hjúkrunarheimili, vantar góðhjartaðan einstakling, karl eða konu, til að tala við af og til. Köllum hann bara símavin.
Það er ástæðan fyrir því að ég set þessa beiðni hér inn. Ég var að spjalla við hann í síma í dag og hann fór að segja mér hversu einmana hann er. Nánast enginn kemur að hitta hann á hjúkrunarheimilið, þar sem hann býr. En honum finnst gott að hlusta á Lindina.
Ég kasta því fram þeirri hugmynd hvort einhver bjóði sig fram til í að hringja í hann, t.d. 1-2svar í viku og spjalla um daginn og veginn. Þar sem það yrði í gegnum síma, þá skiptir í raun ekki máli hvar þú ert á landinu (eða heiminum). Þetta þarf alls ekki að vera oft eða tímafrekt. Bara eftir því hvernig stendur á hjá þér.
Kasta þessari hugmynd bara til ykkar, kæru hlustendur Lindarinnar. Ef þetta talar til þín, þá þætti mér vænt um að heyra í þér. Við getum þá rætt þetta og ég kynnt þig fyrir honum.
Í Jesaja 58:9-10 segir; „Ef þú …. réttir hungruðum það sem þig langar sjálfan í og seður þann sem bágt á, þá rennur ljós þitt upp í myrkrinu og niðdimman kringum þig verður sem hábjartur dagur.”
Kveðja, Hafsteinn Gautur á Lindinni, 567-1818
P.S.: Til áréttingar þá vil ég nefna að myndin að ofan er gerð með aðstoð gervigreindar.